PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ætti Ísland ekki að hætta við olíu­leitina?

Bill Gates, ríkasti maður heims og einn sá allra áhrifa­mesti, er maður glöggur og skrifar oft skemmtilega pistla á vefsíðu hans og Melindu, eiginkonu hans. Í lok síðasta árs stofnaði hann fjár­festinga­sjóð, Breakthrough Energy Coaliton, sem mun hafa það megin­hlutverk að ýta undir tækni­framfarir í orku­geiranum, með það að markmiði að nýta vistvæna orku og draga úr mengun af manna­völdum....
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Goðsögnin um „dauða­listann“

Viðskipta­Mogginn birti í morgun lista yfir þau fyrirtæki sem voru á lista Arion banka sem ýmsir hafa kallað „dauða­listann“ í umræðunni á undan­förnum árum. Lán fyrir­tækjanna, sem voru 40 talsins, voru færð til Arion banka á mjög lágu verði. Þegar bankinn var afhentur kröfu­höfum gamla Kaupþings árið 2009 var samið um að þau yrðu afmörkuð (e. ring-fenced) þannig að 80...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Stjórn­endur Rio Tinto átta sig vonandi núna á stöðu málsins

Útflutnings­bann hófst á miðnætti í álverinu í Straumsvík eftir að félags­dómur úrskurðaði bannið löglegt. Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðs­félagsins Hlífar, sagðist í viðtölum í gær, vonast til þess að þessi niður­staða myndi þrýsta á um lausn á erfiðri kjara­deilu í Straumsvík. Í sama streng tók upplýsinga­fulltrúi álversins í Straumsvík, Ólafur Teitur Guðnason. Næsta mál á dagskrá í þessari hörðu deilu, gæti...
Pistill

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

Áhugalaus um að erfa landið

​Mikil­vægasta mótunarafl í heiminum er mannlegur vilji. Íslensk ungmenni vilja ekki ráða sig í stóriðju­störf og Dreka­svæðið hljómar í þeirra eyrum eins og kafli úr Harry Potter bók. Helmingurinn hefur ekki einu sinni hug á að búa á Íslandi í fram­tíðinni, hvað þá meira. Nýlegar viðhorfs­kannanir benda til þessa. Þeir sem afskrifa niður­stöðurnar sem draumóra í ungu kynslóðinni eru á...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Búvöru­samningarnir eru verð­tryggðir

Búvöru­samningarnir sem ritað var undir við íslenska bændur á föstudag hafa valdið miklu uppnámi í íslensku samfélagi. Hagsmuna­samtök versl­un­ar­innar fóru af hjörunum yfir þeim og valdir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins sömuleiðis. Stjórnar­andstöðu­þingmenn hafa kallað þá glóru­lausa. Fram­sóknarmenn, með forsætis­ráðherrann Sigmund Davíð Gunnlaugsson fremstan í flokki, verja samninganna hins vegar út í ystu æsar, líkt og við var að búast. Framsóknar­flokkurinn er líka,...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Stjórn­málamenn verða að hætta þessum skotgrafa­hernaði

Einu sinni sem oftar, eru það stjórn­málamenn sem taka ákvörðun um það, að beina umræðu um mörg af þeim erfiðu málum sem við landsmenn glímum við, í skotgrafa­hernað milli lands­byggðarinnar og höfuð­borgð­ar­svæð­isins. Nú síðast er það umræða um þá ákvörðun háskóla­ráðs Háskóla Íslands að flytja íþrótta­fræðinám frá Laugar­vatni til Reykja­víkur. Ákvörðunin er umdeild, einkum og sér í lagi við Laugar­vatn,...
Pistill

Óttar Guðmundsson

Lítils­virðing við fórnar­lömb eineltis

Maðurinn er félags­vera sem unir sér best í vinsam­legu samneyti við aðrar manneskjur. Flest allir vilja lifa í sátt við nánasta umhverfi sitt. Útskúfun úr mannlegu samfélagi er einhver harðasta refsing sem hægt er að beita. Þetta fékk Grettir Ásmundsson að sannreyna forðum. Hann var allra manna lengst í útlegð á Íslandi og hraktist lands­hluta á milli einn og myrk­fælinn....

Mest lesið undanfarið ár