PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Málefnaleg rökræða er það sem hinir fordóma­fullu óttast mest

Í Banda­ríkjunum er mikil spenna á hinu pólitíska sviði, þar sem tekist er á innan Repúblikana og Demókrata um hverjir verði fulltrúar flokkanna í slagnum um embætti forseta Banda­ríkjanna, en kosið verður í nóvember á þessu ári. Bernie Sanders og Hillary Clinton eru í harðri baráttu í einstökum ríkjum, en í könnunum í augna­blikinu hefur Hillary vinninginn. Sanders er hins...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju beitir VR sér ekki beint vegna arðgreiðslna trygginga­félaganna?

Arðgreiðslur trygginga­félaga landsins, sem ætla að greiða hluthöfum sínum samanlagt 8,5 milljarða króna í arð og kaupa hlutabréf af þeim fyrir 3,5 milljarða króna, hafa verið harðlega gagn­rýndar undan­farna daga. Ekki síst vegna þess að þessar greiðslur eru langt umfram hagnað félaganna þriggja í fyrra. FÍB, félag íslenskra bifreiða­eigenda, segir til að mynda að trygginga­félög stundi sjálftöku og grip­deildir úr...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Þó vel gangi þá má ekki forðast erfiðu spurn­ing­arnar

Staða efnahags­mála á Íslandi er um margt góð um þessar mundir. Það uppgangur víðast hvar, atvinnu­leysi lítið og merki um þenslu eru farin að sjást, ekki síst í byggingar­iðnaði. Enda ekki undarlegt, þar sem mikil vöntun er á húsnæði, einkum á höfuð­borgar­svæðinu. Til framtíðar litið eru samt markar spurningar aðkall­andi. Hvernig ætlar Ísland að verða hluti af alþjóða­væddum viðskipta­heimi? Er...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ítrekaðar og grófar hótanir í garð RÚV í umboði Fram­sóknar

Kristinn Dagur Gissurarson, sem situr í stjórn RÚV fyrir hönd Framsóknar­flokksins, varð í gær uppvís að því að skipta sér að dagskrár­valdi RÚV með grófum hætti. Í viðtali við Útvarp Sögu náði Kristinn Dagur að koma því á framfæri að honum hugnaðist ekki að „klám­sýning“ eins og atriði Reykja­víkurdætra í sjónvarps­þætti Gísla Marteins Baldurs­sonar á föstudag, að atriðið ætti ekki...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Upprisa gegn Trump er upprisa gegn fordómum

Margir helstu forystu­menn Repúblikana­flokksins í Banda­ríkjunum eru farnir að berjast hatramm­lega gegn Donald Trump, sem nú er langsamlega vinsælasti fram­bjóðandi flokksins fyrir forseta­kosningarnar í nóvember. Sá sem hefur verið í mesta frumkvæðis­hlutverkinu í þeim efnum, um nokkurt skeið, er Paul Ryan, forseti fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings og fyrr­verandi vara­forsetaefni Repúblikana. Ryan, sem er 46 ára gamall, hefur gagnrýnt Trump harðlega - en...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Vill ráðherra að banka­ráðið víki?

Aðal­fundum Lands­bankans og Íslands­banka hefur verið frestað, eins og fram kom í gær, eftir að Banka­sýsla ríkisins óskaði eftir því. Jón Gunnar Gunnarsson, forstjóri Banka­sýslunnar, ræður þar ríkjum. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um mbl.is, sem sagði frá frestuninni í gær, er beðið eft­ir samþykki Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins varðandi að sama val­nefnd geti skipað stjórn­ar­menn í báðum bönk­un­um. Formaður bankaráðs Lands­banka Íslands er Tryggvi Pálsson en...

Mest lesið undanfarið ár