PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ljós vonar gegn hatri og illsku

Hryðju­verkin í Brussel eru skelfileg áminning um það hversu mikinn skaða hatur og illska getur skapað í samfélagi okkar. Hugurinn er hjá þeim sem eiga um sárt að binda, og vonandi verða viðbrögð þjóðar­leiðtoga á þá leið, að þau veki upp von um frið og öryggi. Yfir­lýsingar Francois Hollande, forseta Frakk­lands, þar sem hann stóð þrútinn af reiði eftir hryðju­verkin...
Pistill

Ásdís Ólafsdóttir

Að bjarga lífi með tweeti sínu

Sjálfs­upptekin. Gráðug. Löt. Svona lýsir aldamóta­kynslóðin sjálfri sér. Í nýlegri bandarískri könnun var fólk af ólíkum kynslóðum spurt hversu vel ákveðin karakter­einkenni lýstu þeirra eigin kynslóð. Niður­stöðurnar sýna að aldamóta­kynslóðin, þeir sem fæddir eru á milli 1980 og 1994, finnst lítið til eigin kynslóðar koma og telja sig almennt óhófsama letingja. Það er ekki einungis aldamóta­kynslóðin sjálf sem hefur lítið...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Mikilvægt átak

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðis­ráðherra, undir­ritaði í gær samninga við fjórar heilbrigðis­stofnanir um þátttöku þeirra í skipulögðu átaki til að stytta bið sjúklinga eftir ákveðnum brýnum aðgerðum. Samningarnir eru við Land­spítalann, Sjúkra­húsið á Akureyri, Heilbrigðis­stofnun Vestur­lands og fyrir­tækið Sjónlag hf. Í tilkynningu frá velferðar­ráðuneytinu kemur fram að áætlað er að verja um 1,6 milljarði króna til verk­efnisins á árunum 2016-2018 en...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Já-kórinn þagnar líklega ekki alveg strax

Fjármála­eftirlitið (FME) sendir reglulega frá sér vefritið Fjármál, og í því nýjasta er umfjöllun um kvik­myndina The Big Short. Hún er afbragðsgóð eins og bókin hans Michael Lewis, sem lýsti stöðu mála á Íslandi í Vanity Fair undir fyrir­sögninni Wall Street on The Tundra. Eins og Paul Krugman þá lýsti hann stöðu mála hér á landi sem nær full­kominni vitfirringu....
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Vonandi verður ekki gengið of hratt um gleðinnar dyr

Staða efnahags­mála var í öndvegi á aðalfundi Seðla­banka Íslands í gær, eins og ávallt þegar sá fundur fer fram. Már Guðmundsson, seðla­bankastjóri, fór ítarlega yfir sviðið og það sama má segja Bjarna Benediktsson, efnahags- og fjármála­ráðherra. Í máli þeirra beggja kom skýrt fram, að staða efnahags­mála væri góð, og merkin um fram­haldið væri það einnig. Skuldir eru að lækka, verðbólga...

Mest lesið undanfarið ár