Ömurleg örlög fjölskyldu sem vísað var frá Íslandi

Leo var átján mán­aða gam­all þegar íslensk stjórn­völd vís­uðu fjöl­skyldu hans úr landi. Móðir hans bar barn undir belti og fædd­ist Leona systir hans í flótta­manna­búðum í Þýska­landi, líkt og Leo. Þýsk stjórn­völd hafa nú ákveðið að senda for­eld­rana aftur til síns heima, en faðir barn­anna kemur frá Írak og móðir þeirra frá Íran. Af ótta við að lenda aftur í því sama og hér á Íslandi, fyr­ir­vara­lausum brott­flutn­ingi í fylgd lög­reglu, lagði fjöl­skyldan aftur á flótta og var í felum í frönskum skógi, en nú virð­ist aðskiln­aður óum­flýj­an­legur.

Á flótta í fimm ár Shawboo og Nasr flúðu fyrir ástina en grunaði ekki að þau yrðu á flótta um meginland Evrópu, með tvö lítil börn, í fimm ár. Þau spyrja hvort fólk haldi virkilega að þau hefðu lagt þetta á sig og börnin ef þau væru óhult í heimalandinu. Þegar þeim var vísað frá Íslandi var Shawboo ekki aðeins barnshafandi heldur illa haldin af áfallastreitu og með alvarlegt þunglynd.

Á sex ára tíma­bili frá mars 2013 til apríl á þessu ári var 317 börnum vísað frá Íslandi, þar af 75 á þessu ári. Þau höfðu sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi og mörg þeirra áttu að baki langt og strangt ferða­lag. Sum voru að flýja stríðs­á­tök í heima­löndum sínum, öll komu hingað í leit að betra og örugg­ara lífi.
 
317 börn. Við vitum ekki hver þau eru, hvað þau heita, hvað þau eru gömul eða hvað þau voru búin að ganga í gegnum áður en þau komu til Íslands. Sum voru án fylgdar, flest þó með öðru eða báðum for­eldrum. Sum eru fædd í stríðs­hrjáðum löndum. Við vitum ekki hvar þau eru núna. Það á við um lang­flest börn sem hefur verið synjað um vernd á Íslandi. Almenn­ingur fær í fæstum til­fellum fréttir af afdrifum barn­anna og stjórn­völd fylgj­ast ekki með eins og var stað­fest í svari …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár