Íslensku konurnar lausar úr haldi Ísraela

Leita leigu­bíls til að kom­ast út úr land­töku­byggð­inni sem þær voru fluttar til. „Við erum alveg dauð­hræddar hérna,“ segir Björk Vil­helms­dóttir. Hún ótt­ast að verða hindruð í að koma aftur til Palest­ínu.

Íslensku konurnar lausar úr haldi Ísraela
Laus úr haldi Björk og hinum sjálf­boða­lið­unum þremur var haldið í þrjá klukku­tíma. Mynd: Úr einkasafni

Ísra­elska lög­reglan hefur sleppt íslensku kon­unum tveimur og frönsku kon­unum tveimur sem voru hand­teknar í morgun þegar þær aðstoð­uðu palest­ínska bændur við ólífu­tínslu. Björk Vil­helms­dóttir, önnur íslensku kvenn­anna, segir að þeim hafi verið gerð grein fyrir því að ef þær létu aftur sjá sig við ólífu­tínslu á Vest­ur­bakk­anum yrðu þær hand­teknar og mættu sæta ákæru.

„Við vorum í haldi í þrjá tíma en við erum eig­in­lega verr staddar núna, á land­töku­svæði hér í Ariel. Nú fyrst erum við orðnar ólög­legar, enda land­töku­svæði ólög­leg sam­kvæmt alþjóða­lögum, en ekki ein­hver ólífu­tínslu­svæði eins og við vorum á. Við erum að leita að leigu­bíl núna til að kom­ast í burtu, við höfum aldrei verið áður á land­töku­svæði, við erum alveg dauð­hræddar hérna,“ segir Björk í sam­tali við Stundina.

„Nú fyrst erum við orðnar ólög­legar, enda land­töku­svæði ólög­leg sam­kvæmt alþjóða­lögum“

Konurnar fjórar eru sjálf­boða­liðar á vegum Alþjóða frið­ar­starfs kvenna og hafa þær að und­an­förnu veitt vernd­andi við­veru til aðstoðar palest­ínskum bændum á her­teknu svæð­unum á Vest­ur­bakk­anum. Þær voru hand­teknar í morgun við slíka iðju. „Við fengum að vera allar fjórar saman, við tvær frá Íslandi og tvær franskar konur, inni á ein­hverri skrif­stofu. Það var mik­ill stuðn­ingur að því. Það var þarna fullt af löggum allt í kringum okkur. Við mættum aldeilis ekki vin­sam­legu við­móti og þeir meira að segja neit­uðu að tala við íslenska ræð­is­mann­inn. Ég veit hins vegar að íslenska borg­ara­þjón­ustan hjálp­aði til við að fá okkur lausar, mað­ur­inn minn sagði mér að hann hefði fengið þær upp­lýs­ingar að við værum lausar áður en ég hringdi í hann.“

Björk segir að kon­urnar hafi ekki setið undir hót­unum eða ógn­unum á meðan þær voru í haldi en þegar verið var að taka þær fastar hafi þeim verið sýnd hand­járn og haft í hót­unum við þær. „Það var sagt við okkur að við værum inni á lok­uðu hern­að­ar­svæði en við vorum nú þarna með bónda sem hafði leyfi til að tína ólívur á svæð­inu, það var nú ekki meira hern­aða­svæði en svo. Þetta kom okkur algjör­lega í opna skjöldu. Og þó, kannski ekki alveg því við vissum af því að það var búið að vera að reka alþjóð­lega sjálf­boða­liða i burtu af svæð­inu. Við vorum látnar lausar með því for­orði að við skyldum ekki láta sjá okkur þarna meira í Burin, á þessu lok­aða hern­að­ar­svæði. Ef svo yrði þá yrðum við hand­teknar fyrir alvöru og kærðar fyrir athæfið.“

„Ég hef bara mestar áhyggjur af því að mér verði meinað að koma aftur“

Björk hefur áður verið í Palest­ínu við sjálf­boða­liða­störf af svip­uðum toga. Hún segir að henni finn­ist sem nú sé óvenju mikil harka í við­brögðum Ísra­els­manna. „Tengiliður okkar við bændur á svæð­inu er á sama máli. Við ætl­uðum upp­haf­lega til ann­ars bónda á svæð­inu en sá hafði hringt í morgun og látið vita af því að lög­reglan væri kom­inn á svæðið og segði að alþjóð­legir sjálf­boða­liar mættu ekki vera á svæð­inu. Svo við fórum bara til ann­ars bónda.“

Björk á flug heim til Íslands á morgun en hún er búin að vera í þrjár vikur í Palest­ínu. Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að henni verði á ein­hvern hátt gert erfitt fyrir á leið­inni heim segir Björk að það komi bara í ljós annað kvöld en vissu­lega hafi ýmsir sem lent hafa upp á kant við ísra­elsk stjórn­völd fengið að finna fyrir því. „Ég hef bara mestar áhyggjur af því að mér verði meinað að koma aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár