Áskotnaðist hausinn á fjallkonunni

Mynd­list­ar­hjónin Hulda Hákon og Jón Óskar taka á móti blaða­manni á vinnu­stofu sinni í Vest­manna­eyjum, þar sem í ljós kemur að Hulda safnar grænu gleri, hefur litla þol­in­mæði fyrir tækniörð­ug­leikum og lærði að meta hand­verk­færi tann­lækn­is­ins, tengda­föður síns.

Áskotnaðist hausinn á fjallkonunni

Yfir­lits­sýn­ing stendur nú yfir á verkum mynd­list­ar­kon­unnar Huldu Hákon í Lista­safni Íslands. Hulda hefur starfað í um fjöru­tíu ár og markað sér sér­stöðu á meðal íslenskra mynd­list­ar­manna en myndir hennar, sem flestar eru lág­myndir, hafa vakið athygli fyrir að vera frum­legar og djarfar. Hún er bæði gagn­rýnin og afar áhuga­söm um fjöl­breytta afkima sam­fé­lags manna og vísar í sagna­arf, póli­tík sem og neyslu­hyggju og umhverf­is­vit­und í verkum sínum.  

Hulda hefur ásamt Jón Óskari, mann­inum sínum, sem einnig er mynd­list­ar­maður, komið sér upp íbúð og stúd­íói í Vest­manna­eyjum en húsið keyptu þau árið 1993. „Þetta ár áskotn­að­ist okkur hjónum báðum pen­ingur, en Jón Óskar vann sænsku Edstrandska og á svip­uðum tíma gerði ég úti­lista­verk í Noregi í tengslum við Artscape Nordland. Þá ákváðum við að kaupa okkur vinnu­stofu.“

„Þetta ár áskotn­að­ist okkur hjónum báðum pen­ingur“

Vinnu­stofu­prís …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár