Blaðamannaverðlaun ársins: Bókin dregur upp skýra mynd af ósæmilegu háttalagi lykilbankamanna

Þórður Snær Júl­í­us­son var val­inn blaða­maður árs­ins fyrir bók­ina Kaupt­hink­ing. Stundin vann í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku og fékk flest ljós­mynda­verð­laun. Hér má sjá yfir­lit yfir allt efnið sem til­nefnt var til verð­launa og verð­launa­myndir.

Blaðamannaverðlaun ársins: Bókin dregur upp skýra mynd af ósæmilegu háttalagi lykilbankamanna

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, var val­inn blaða­maður árs­ins 2018 fyrir bók sína Kaupt­hink­ing: Bankinn sem átti sig sjálfur. Verð­launin voru afhent um helg­ina, en veitt voru verð­laun í fjórum flokkum. Stundin vann í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku, þegar þeir Freyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson, fengu verð­laun fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga.  

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands afhenti einnig verð­laun fyrir myndir árs­ins um helg­ina. Stundin vann þar til flestra verð­launa, en Heiða Helga­dóttir átti mynd árs­ins, mynda­röð árs­ins og por­trett-mynd árs­ins. 

Rannsóknarvinna sem á sér fáar hliðstæður 

Blaða­manna­fé­lag Íslands veitti verð­launin. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir að umfjöllun Þórðar hafi dregið upp skýra mynd af ósæmi­legu hátt­ar­lagi þeirra lyk­il­banka­manna sem leiddu Kaupþing frá einka­væð­ingu og fram af bjargs­brún­inni árið 2008. Bókin sé afrakstur ára­langrar rann­sókn­ar­vinnu og víð­tækrar heim­ild­ar­vinnu sem eigi sér fáar hlið­stæður.

 „... dregur upp skýra mynd af ósæmi­legu hátt­ar­lagi þeirra lyk­il­banka­manna sem leiddu Kaupþing frá einka­væð­ingu að falli“

Ítarlega umfjöllun Kjarnans um við­fangs­efni bók­ar­innar má lesa hér. 

Kortið Eign­ar­halds auð­manna á jörðum má sjá hér á korti.
Rann­sókn­ar­blaða­menn árs­insFreyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson unnu til verð­launa í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku.

Umfjöllun Stund­ar­innar um Landið sem auð­menn eiga er sögð hafa veitt  „mik­il­væga yfir­sýn yfir umdeilt mál sem hefur verið mikið til umræðu í sam­fé­lag­inu,“ í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

„Í umfjöll­un­inni birt­ist meðal ann­ars eign­ar­hald auð­fólks á jörðum á Íslands­korti sem nær yfir heila opnu og veitir skýra yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna,“ en kortið var unnið í sam­starfi við Davíð Þór Guð­laugs­son, umbrots­mann og ljós­mynd­ara á Stund­inni.

Tilnefningar og rökstuðningur dómefndar

RÚV fékk flestar til­nefn­ingar til blaða­manna­verð­launa, eða fimm til­nefn­ingar í þremur flokkum. Þar á eftir kom Stundin með þrjár til­nefn­ingar. Aðrir miðlar, Morg­un­blaðið, Frétta­blaðið, Kjarninn og Mannlíf, fengu eina til­nefn­ingu hver. 

Yfirlit yfir allar til­nefn­ingar og rök­stuðn­ing dóm­nefndar má lesa í heild sinni hér að neðan. Með því að ýta á linkana má sjá efnið sem var til­nefnt. 

Verð­launa­af­hend­ingin Hér má sjá alla til­nefnda og verð­launa­haf­ana á afhend­ing­unni sem fram fór í hús­næði Blaða­manna­fé­lags­ins. Steindór og Freyr voru staddir erlendis og því ekki við­staddir athöfn­ina. 

Viðtal ársins

Tilnefnd voru:

Jóhann Páll Jóhanns­son, Stund­inni.  Fyrir við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur sem steig fram í kjöl­far þess að hafa tekið upp hat­urs­orð­ræðu þing­manna á Klaust­ur­bar og sent fjöl­miðlum til úrvinnslu.

Viðtalið við Báru má lesa hér: Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskr­aði.

Milla Ósk Magn­ús­dóttir, RÚV.  Fyrir við­tal við hjónin Stefán Þór Gunn­ars­son og Elísu Rós Jóns­dóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkni­efna. Hjónin lýsa eigin úrræða­leysi og áfall­inu sem fylgdi and­lát­inu. 

Viðtalið við hjónin má lesa hér: Ofneysla ungs fólks.

Ragn­heiður Linnet, Mannlífi. Fyrir við­tal við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene, um aðdrag­anda ígræðsl­unnar og hvernig líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir þá örlaga­ríku aðgerð.

Viðtalið við Merhawit má lesa hér: Ekkja plast­barka­þeg­ans rýfur þögn­ina. 

Vinn­ings­hafi og rök­stuðn­ingur dóm­nefndar:  Ragn­heiður Linnet, Mannlífi, hlýtur verð­launin fyrir við­tal sitt við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase Hún er ekkja plast­barka­þeg­ans Andemari­ams Beyene sem var fyrsti mað­ur­inn sem gervi­barki var græddur í árið 2011.

„Merhawit lýsir aðdrag­anda aðgerð­ar­innar og því þegar hún missti mann sinn í einu stærsta svika­máli sem upp hefur komið í lækna­vís­indum ára­tugum saman“

Í við­tal­inu kynn­ist les­and­inn harm­leik fjöl­skyld­unnar. Merhawit lýsir aðdrag­anda aðgerð­ar­innar og því þegar hún missti mann sinn í einu stærsta svika­máli sem upp hefur komið í lækna­vís­indum ára­tugum saman. Málið teng­ist Íslandi með beinum hætti vegna þess að Andemariam var búsettur hér þegar hann veikt­ist og því sjúk­lingur íslenskra lækna.

Merhawit greinir frá því hvernig hún stóð upp rétt­inda­laus með þrjú ung börn eftir and­lát Andemari­ams árið 2014.

Viðtalið er vel skrifað og hjart­næmt. Auk þess að greina frá örlögum Merhawit og barn­anna veitir það góða inn­sýn í málið og það sem aflaga fór bæði vís­inda­lega og sið­fræði­lega.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Til­nefndir voru:

Freyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni. Fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga sem veitir ríka yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna og inn­sýn í hverjir þeir eru.

Umfjöll­un­ina má lesa hér: Landið sem auð­menn eiga. 

Helgi Seljan, RÚV. Fyrir frétta­skýr­ingu um stöðu erlendra verka­manna og sjálf­boða­liða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.

Umfjöll­un­ina má sjá hér: Svarta hliðin á íslenskum vinnu­mark­aði. 

Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, RÚV. Fyrir frétta­skýr­ingu um vopna­flutn­inga Air Atlanta og van­höld Sam­göngu­stofu á því að fram­fylgja sátt­málum um vopna­flutn­inga sem Ísland hefur full­gilt.

Umfjöll­un­ina má sjá hér: Íslensk stjórn­völd hafa brugð­ist. 

Vinn­ings­hafar og rök­stuðn­ingur dóm­nefndar:  Verðlaun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins 2018 hljóta Freyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni, fyrir umfjöllun sína, Landið sem auð­menn eiga.

Í umfjöll­un­inni birt­ist eign­ar­hald auð­fólks á jörðum á Íslands­korti sem nær yfir heila opnu og veitir skýra yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna. Sumir þeirra hafa safnað að sér fjölda jarða og jafn­vel keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á land­inu. Þá er eign­ar­hald fjölda jarða í félögum sem stundum hvílir leynd yfir.

Í umfjöll­un­inni eru við­töl við nokkra þeirra sem hvað umsvifa­mestir hafa verið í jarða­kaupum og veita við­tölin inn­sýn í marg­breyti­legar ástæður fólks fyrir því að vilja eign­ast jarðir á Íslandi.

Framlag þeirra Freys og Stein­dórs veitir mik­il­væga yfir­sýn yfir umdeilt mál sem hefur verið mikið til umræðu í sam­fé­lag­inu.

Umfjöllun ársins

Tilnefnd voru:

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, Frétta­blað­inu.  Fyrir umfjöllun með fréttum og frétta­skýr­ingum um for­sögu, end­ur­upp­töku og eft­ir­mála Guð­mundar- og Geir­finns­mála.

Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, Morg­un­blað­inu/Mbl.is. Fyrir greina­flokk­inn Gætt að geð­heil­brigði um úrræði og úrræða­leysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geð­sjúk­dóma og/eða fíkn.

Hér má sjá grein­ar­flokk­inn: Gætt að geð­heil­brigði. 

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, Stund­inni. Fyrir umfjöllun með frá­sögnum átta kvenna sem opin­bera bit­leysi nálg­un­ar­banns sem úrræðis í heim­il­is­of­beld­is­málum.

Umfjöllun Hólm­fríðar má lesa hér: Kerfinu mis­tekst að vernda konur. 

Vinn­ings­hafi og rök­stuðn­ingur dóm­nefndar:  Verðlaun fyrir umfjöllun árs­ins hlýtur Aðal­heiður Ámunda­dóttir, Frétta­blað­inu, fyrir upp­lýsandi og grein­ar­góð skrif um Guð­mundar- og Geir­finns­mál.

Í umfjöllun sinni um end­ur­upp­töku og um leið for­sögu Guð­mundar- og Geir­finns­mála tekst Aðal­heiði að fanga kjarna atburða hverju sinni og setja í sam­hengi.

Auk upp­lýsandi frétta af gangi dóms­máls­ins varp­aði Aðal­heiður í frétta­skýr­ingum ljósi á sögu manns­hvarf­anna tveggja 1974, rann­sókn þeirra á sínum tíma og aðdrag­anda þess að málin feng­ust end­ur­upp­tekin á síð­asta ári. Þá fylgdi hún mál­inu vel eftir þegar Hæsti­réttur hafði fellt sinn dóm með umfjöllun um mögu­leg eft­ir­mál og mögu­leik­anum á því að manns­hvörfin upp­lýs­ist á end­anum.

Skrif Aðal­heiðar ein­kenn­ast af djúpri þekk­ingu á flók­inni og langri sögu sem hún skilar les­endum á skýran og aðgengi­legan máta.

Blaðamannaverðlaun ársins

Tilnefnd voru:

Sigríður Hall­dórs­dóttir, RÚV. Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með slá­andi hætti hvernig það mengar umhverfið, neyslu­vatn okkar og mat­væli.

Umfjöllun Sigríðar má sjá hér: Hafið er nátt­úr­lega fullt af plasti.

Viktoría Her­manns­dóttir og Þór­hildur Ólafs­dóttir, RÚV. Fyrir útvarps­þátta­röð­ina Kverka­tak þar sem lýst er birt­ing­ar­myndum heim­il­is­of­beldis frá sjón­ar­horni þolenda, aðstand­enda þeirra og sér­fræð­inga.

Þættina má heyra hér: Kverka­tak. 

Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum. Fyrir bók­ina Kaupt­hink­ing sem dregur fram skýra mynd af hug­ar­fari og ólög­legum fjár­mála­gjörn­ingum innan Kaup­þings í aðdrag­anda banka­hruns­ins og afleið­ingum þeirra.

Vinn­ings­hafi og rök­stuðn­ingur dóm­nefndar:  Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum, hlýtur Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2018 fyrir heild­stæða grein­ingu á hug­ar­fari og ólög­legum fjár­mála­gjörn­ingum í bók­inni Kaupt­hink­ing – Bankinn sem átti sig sjálfur.

Umfjöllun Þórðar Snæs dregur upp skýra mynd af ósæmi­legu hátt­ar­lagi þeirra lyk­il­banka­manna sem leiddu Kaupþing frá einka­væð­ingu að falli árið 2008. Umfjöll­unin er afrakstur ára­langrar rann­sóknar Þórðar á mál­inu og víð­tækrar heim­ilda­vinnu úr bæði opin­berum og óop­in­berum gögnum sem hann komst yfir. Vinna hans á sér fáar hlið­stæður.

Bókin sýnir hvernig gera má yfir­grips­mikla rann­sókn­ar­vinnu til margra ára bæði auð­læsi­lega og skilj­an­lega. Hún er áþreif­an­leg heim­ild um það traust sem blaða­maður getur áunnið sér og þá þekk­ingu sem mynd­ast þegar hann helgar sig mál­efni.

Mynd árs­ins Adrían hefur gaman af því að sitja í strætó og fylgj­ast með umhverf­inu.

Stundin fékk flest ljósmyndaverðlaun

Blaða­ljós­mynd­ara­verð­laun voru einnig veitt um helg­ina. Þar vann Heiða Helga­dóttir, ljós­mynd­ari Stund­ar­innar, til flestra verð­launa, eða fyrir mynd árs­ins, mynda­röð árs­ins og por­trett árs­ins. Haraldur Jónsson átti frétta­mynd árs­ins af alelda húsi á Selfossi og Sig­tryggur Ari ljós­mynd­ari á Frétta­blað­inu átti íþrótta­mynd árs­ins af stuðn­ings­mönnum íslenska lands­liðs­ins sem fylgd­ust með leiknum gegn Argent­ínu í úrhellis­rign­ingu í Hljóm­skála­garð­inum.  

Frétta­mynd árs­ins Hús varð alelda á Selfossi. Slökkvi­lið Árnes­sýslu sinnir slökkvi­starfi. Ljós­mynd­ari Haraldur Jónasson.
Íþrótta­mynd árs­ins Stuðn­ing­menn íslenska lands­lið­is­ins létu úrhellis­rign­ingu ekki aftra sér frá því að fylgj­ast með leiknum við Argent­ínu í Hljóm­skála­garð­inum. Ljósmynd Sig­tryggur Ari.

Mynd árs­ins var hluti af mynda­röð árs­ins, af tví­burað­bræðr­unum Adrían Valentín og Adam Elífi sem eru ell­efu ára og báðir með dæmi­gerða ein­hverfu. Bræð­urnir hafa lít­inn orða­forða en Adam er opn­ari og getur tjáð sig örlítið meira en Adrían - sem var við­fangs­efni Heiðu á mynd árs­ins. Komst dóm­efndin að þeirri nið­ur­stöðu að í þess­ari mynda­röð hafi ljós­mynd­ar­inn fundið leið til að fanga and­rúms­loftið af mýkt og sam­kennd og hafi nálg­ast við­fangs­efnið á sann­fær­andi hátt.

„Myndin sýnir ein­hverfan dreng sem er í átökum við sjálfan sig. Hann er einn en gæti allt eins verið að horfa á ein­eggja tví­bura­bróður sinn“

Hvað varðar mynd árs­ins segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar að það sé sterk og marglaga ljós­mynd sem varpi fram áleitnum spurn­ingum, æ fleiri börn fái grein­ingar sem séu vax­andi sam­fé­lags­vanda­mál á heims­vísu. „Myndin sýnir ein­hverfan dreng sem er í átökum við sjálfan sig. Hann er einn en gæti allt eins verið að horfa á ein­eggja tví­bura­bróður sinn. Á hvern er hann að horfa? Sjálfan sig eða bróður sinn? Er hann að horfa inn í fram­tíð­ina? Hann er í það minnsta í sínum eigin heimi að horfa út.“

Por­trett­mynd árs­insPortrett árs­ins var af Önnu Gílaphon Kjart­ans­dóttur sem ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, sem bæði voru dæmd fyrir ofbeldið sem þau beittu hana og systk­ini hennar.

Portrett árs­ins var af Önnu Gílaphon Kjart­ans­dóttur sem ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, sem bæði voru dæmd fyrir ofbeldið sem þau beittu hana og systk­ini hennar. „Eftir hvert ein­asta skipti sem pabbi var búinn að mis­nota mig sagði hann fyr­ir­gefðu og lof­aði að gera þetta aldrei aftur,“ sagði Anna í við­tali við Stundina.  

Myndir árs­ins, árleg sýn­ing Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands, stendur yfir til 4. apríl í Smára­lind­inni. Þar má sjá 106 myndir frá liðnu ári sem voru valdar af óháðri dóm­nefnd úr 840 inn­sendum myndum íslenskra blaða­ljós­mynd­ara. 

Myndaröð árs­ins Bræð­urnir Adrían og Adam voru við­fangs­efni ljós­mynd­ar­ans í mynda­röð árs­ins. Ljós­mynd­ari Heiða Helga­dóttir.
Umhverf­is­mynd árs­ins Tveir hvalir strönd­uðu í Engey. Hópur fólks kom þangað til að reyna að bjarga þeim. Annar hval­ur­inn dó en það tókst að bjarga hinum. Ljós­mynd­ari Eyþór Árnason. 
Daglegt líf mynd árs­ins Fæðing í heima­húsi. Ljós­mynd­ari Aldís Páls­dóttir. 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár