Mynda skjald­borg um Zainab Stór hluti nem­enda Haga­skóla tók þátt í göng­unni og fremst í flokki gekk Zainab. Mynd: Davíð Þór

Gengu fylktu liði í bæinn fyrir skólasystur

Stór hluti nem­enda í Haga­skóla gekk út úr skól­anum klukkan 9 í morgun, til að ganga saman að hús­næði Kæru­nefndar útlend­inga­mála og Dóms­mála­ráðu­neytis og afhenda 6000 und­ir­skriftir sem safnað hefur verið til styrktar nem­anda í skól­anum, Zainab Safari, sem yfir­völd hafa vísað úr landi.

Nemendur í Haga­skóla slepptu fyrstu skóla­stundum dags­ins og gengu þess í stað fylktu liði að hús­næði Kæru­nefndar útlend­inga­mála á Skúla­götu og því næst að Dóms­mála­ráðu­neyt­inu, þar sem und­ir­skriftir þeirra til styrktar skóla­systur þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar voru afhentar. Und­ir­skrift­irnar eru hátt í 6000 tals­ins en þeim var bæði safnað meðal nem­enda Haga­skóla og á vef­síð­unni Change.org. Lögregla var með nokkurn við­búnað í mið­bænum í kringum kröfu­göng­una og fór lög­reglu­bíll á undan hópnum. 

Áður en krakk­arnir lögðu af stað buðu þeir for­eldrum og öðrum að koma í skól­ann, fá sér kaffi­sopa og kleinu og styrkja mál­stað­inn með frjálsum fram­lögum, sýna fjöl­skyld­unni og nem­end­unum í aðgerðum sínum sam­stöðu. Þannig var hafin pen­inga­söfnun fyrir fjöl­skyld­una.

Sindri Bjarka­son, nem­andi í 10. bekkHann segir að nem­endum Haga­skóla finn­ist hræði­legt að vísa eigi Zainab úr landi. Þeir hafi ákveðið að gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir það.

Sindri Bjarka­son, nem­endi í 10. bekk, er einn þeirra sem barist hefur fyrir því að Zainab fái að vera áfram meðal nem­enda í Haga­skóla. Hann sagði nær alla nem­endur skól­ans hafa tekið þátt í und­ir­skrift­ar­söfn­un­inni og göng­unni. „Þetta er bara næstum allur skól­inn, við erum bara öll sam­einuð hérna til að koma og styðja við hana Zainab. Þegar við komumst að því að Zinab átti mögu­leika á að vera vísað úr landi fannst okkur það bara alveg hræði­legt, svo við hóp­uð­umst saman og ákváðum að reyna að gera eitt­hvað í þessu. Við erum búin að vera að safna und­ir­skriftum, bæði frá nem­endum skól­ans en líka bara alls staðar að úr heim­inum, erum komin með hátt í 6000 und­ir­skriftir sem við erum að fara að skila núna,“ sagði Sindri á göng­unni.

Zainab er 14 ára og kom hingað til lands með móður sinni og tólf ára bróður sem gengur í Haga­skóla. Þeim var synjað um efn­is­lega með­ferð á Íslandi, á grund­velli þess að þau hafi þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár