„Reykjavík gæti léttilega verið betri borg en Kaupmannahöfn“

Danski arki­tekt­inn Jan Gehl hefur veitt ráð­gjöf við borg­ar­hönnun í borgum um allan heim til að betrumbæta borg­ar­um­hverfi í þágu mann­lífs. Björn Teitsson, meist­ara­nemi í borg­ar­fræðum við Bauhaus-háskól­ann í Weimar, spjall­aði við Gehl um bók­ina, fer­il­inn og um Reykja­vík.

„Reykjavík gæti léttilega verið betri borg en Kaupmannahöfn“
Borg­ar­um­hverfi ekki gjöf frá guði Danski arki­tekt­inn Jan Gehl segir að Reykja­vík hafi alla burði til að bera jafn góð borg eða betri heldur en Kaup­manna­höfn, hafi borg­ar­búar vilja til. Mynd: Laimonas Baranauskas

Danski arki­tekt­inn Jan Gehl öðl­að­ist heims­frægð í heimi borg­ar­skipu­lags og arki­tekt­úrs á 8. ára­tug síð­ustu aldar með útgáfu bók­ar­innar Livet mellem husene. Síðan þá hefur hann starfað ötul­lega að því að betrumbæta borgir og hefur stundað ráð­gjöf sem arki­tekt og borg­ar­hönn­uður um allan heim. Borgir eins og New York í Banda­ríkj­unum, Melbourne í Ástralíu, São Paolo í Brasilíu og Helsinki í Finn­landi eru meðal fjöl­margra borga sem hafa notið góðs af ráð­legg­ingum Jan Gehl. Fyrir skömmu kom út íslensk þýð­ing á höf­uð­riti Gehl, Mannlíf milli húsa, og gerði arki­tekt­inn sér ferð til Reykja­víkur í til­efni útgáf­unnar.

Það var verið að byggja úti um allt!

Margir segja að Mannlíf milli húsa sé ákveðið and­svar við módernískum straumum í arki­tektúr. Gehl útskrif­að­ist sem arki­tekt árið 1960, þegar módern­ism­inn var alls­ráð­andi, ef svo má segja. Hvernig var fyrir Jan Gehl að vera arki­tekt á 7. ára­tugnum?

„Það var, í stuttu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár