Lýstu áhyggjum af herskyldu, forræði og auðlindum Íslendinga

Á Alþingi var hart tek­ist á um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar lýstu ótta við að missa for­ræði yfir Íslandi, teikn­uðu upp mynd af ytri ógn og ásælni ann­arra þjóða í auð­lind­irnar. Spurt var hvort Íslend­ingar myndu beygja sig undir her­skyldu, jafn­vel þótt evr­ópskur her sé ekki til og Evr­ópu­sam­bandið sé ekki hern­að­ar­banda­lag.

Lýstu áhyggjum af herskyldu, forræði og auðlindum Íslendinga
Frá Alþingi Sigríður Andersen og fleiri héldu fjöl­margar ræður þar sem tek­ist var á um hvort það ætti að leyfa þjóð­inni að greiða atkvæði um að taka upp samn­inga­við­ræður við ESB. Mynd: Golli

Hálf­sann­leikur og vill­andi fram­setn­ing birt­ist í mál­flutn­ingi stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi í aðdrag­anda þess að atkvæði voru greidd á þingi um fyr­ir­hug­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort Ísland eigi að ganga til aðild­ar­við­ræðna við ESB. Samþykkt var að fara í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu nú í ágúst. 

Í grein­ingum Heim­ild­ar­innar á ræðum þing­manna kemur í ljós að algeng­ast var að þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar héldu því fram að engin þjóð hafi fengið var­an­legar und­an­þágur við inn­göngu í ESB, sem er ýmist rangt eða hálf­sann­leikur. 

Sumir þing­menn settu fyr­ir­vara við full­yrð­ing­una, en allur gangur var á því. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Jón Pétur Zimsen, hélt því fram í ræðu­stól Alþingis að ESB væri skuldugt og vildi „hlut­deild“ í auð­lindum Íslend­inga. „Það er ekki til­viljun að skuldug Evrópa vilji fá okkur í sinn faðm. Það er ekki til­viljun,“ sagði hann og lét að því liggja að annað og meira byggi hér undir.

Einfölduðu myndina 

Algengt var að þing­menn héldu því fram að …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Minnumst þess að Sigríður Á. Andersen hrökklaðist úr embætti dómsmálaráðherra vegna lögbrota.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Held að Miðflokks- og Sjálfstæðismenn hafi engar áhyggjur af herskyldu og eignarhaldi á auðlindum, enda slíkt bara hræðsluáróður. Áhyggjurnar eru þær, að þjóðin vilji láta semja, og það sem verra er, að niðurstaðan geti orðið samningur, sem meiri hluti þjóðarinnar vilji ganga að..
    10
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þegar rökin um auðlindir, auðlindarentu og kvótakerfi verða of flókin má hræða fólk með evrópskum her sem EKKI er til. En við skulum heldur gleyma því að það var íslenska þjóðin sem vann þorskastríðið og svo voru það sægreifar sem unnu stríðið um auðlindarentuna með dyggri aðstoð Alþingis íslendinga.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár