Nikótín­púða má finna í öllum regn­bog­ans litum og fjölda bragð­teg­unda. Mynd:Golli Mynd: Golli

„Við erum að búa til nýja nikótínfíkla í samfélaginu“

Notkun nikótín­púða og raf­sí­gar­etta hefur vaxið ört á Íslandi, einna helst meðal ungs fólks. Læknir telur nikótín­fíkn vera mikla ógn við heilsu ungs fólks, þar sem var­an­leg áhrif á heila og umb­un­ar­kerfið séu meðal afleið­ing­anna.

Í þjóð­ar­púlsi Gallup árið 2023 kom fram að sögu­lega lágt hlut­fall fólks reyki enn þá sígar­ettur dag­lega, eða 5% frá því sem var 9% árið 2020. Það gætu talist gleði­fréttir, en á móti kemur vakti athygli sú mikla aukn­ing þeirra sem reykja raf­sí­gar­ettur og taka nikótín­púða á dag­legum grund­velli. Dagleg notkun raf­sí­gar­etta tvö­fald­að­ist á þessum tíma, frá 2% upp í 4%, og notkun nikótín­púða þre­fald­að­ist, frá 4% upp í 12%. 

Þegar rýnt er í töl­urnar sést skýrt að ald­urs­skipt­ing er ein af veiga­mestu þátt­unum þar, eng­inn undir þrí­tugu sagð­ist reykja sígar­ettur dag­lega, en 5% af þeim sögð­ust nota raf­sí­gar­ettur svo oft og heil 33% þeirra á aldr­inum 18–29 ára segj­ast nota nikótín­púða á hverjum ein­asta degi.

Lára G. Sig­urð­ar­dóttir, læknir og lýð­heilsu­fræð­ingur, segir þetta hafa breyst hratt, raf­sí­gar­ettur hefðu fyrir nokkrum árum verið stærra vanda­mál en nú séu það nikótín­púð­arnir „sem eru helsta ógnin fyrir unga fólkið“. Hættan …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ESG
    Erna Sigurveig Guðmundsdóttir skrifaði
    Ég hef aldrei skilið hvernig rúv hefur leyft þessa auglýsingu um nikotín púðana í mörg ár
    0
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    BESTA RÁÐIÐ TIL VARNAR ÞVÍ AÐ ÁNETJAST ER AÐ BYRJA ALDREI BARA LEIÐA ALLT SVONA SKAÐLEGT HJÁ SER AÆVEG SAMA HVAÐ!!
    0
  • Ásmundur Þórarinsson skrifaði
    Útlistun Einars Ben á sálarlausum sölumanni eymdar og dauða á vel við þá vesalinga sem komst upp með versunarhætti eins og þá er greinin lýsir: "Okrarans höfuð hrokkið og grátt/ hvimaði um hillur og snaga./ Melrakka augað var flóttaflátt, /frærðin rist í hvern andlitsdrátt /og glottið ein glæpasaga./ Hann hafði ævinnar löngu leið/ leikið sér frjáls að tárum og neyð/ og óheftur ginið við gróðans veið,/ geymdur helvítis aga."
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Í boði frjálshyggjunnar. Það er svo íþyngjandi að slá á putta þeirra sem geta grætt á því.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár