Minkabúi í Mosfellsdal lokað verði aðbúnaður dýra ekki bættur

Mat­væla­stofnun segir ástandið á Dals­bú­inu í Mos­fells­dal óvið­un­andi. Búinu verði lokað í haust ef aðbún­aður dýr­anna verði ekki bættur. Á búinu fund­ust slas­aðir minkar sem ekki hafði verið sinnt. MAST segir að dýrin fái ekki fóður á sunnu­dögum og að búrin hafi ekki verið nægi­lega ein­angruð í 10 stiga frosti síð­asta vetur. Þá hafi minkar sloppið út af búinu og drepið fjölda hæna og dúfna í Mos­fells­dal.

Minkabúi í Mosfellsdal lokað verði aðbúnaður dýra ekki bættur
Mínus tíu gráður á skoð­un­ar­degi MAST MAST segir aðbúnað dýr­anna á búinu óvið­un­andi. Í skýrslu MAST segir að mjög kalt hafi verið á skoð­un­ar­degi í jan­úar eða mínus tíu gráður. Í mörgum búrum hafi ekki verið nægj­an­legt magn af heyi eða hálmi í hreið­ur­kössum. „Hins­vegar upp­lýsti umsjón­ar­maður að hann hafi ekki verið komin lengra í að bera fram hey þegar eft­ir­lits­fólk bar að garði.“ Mynd: MAST

„Efni: Óvið­un­andi ástand á Dalsbúi. Minkar hafa sloppið og vel­ferð ábóta­vant. Úrbóta kraf­ist. MAST mun boða lokun bús­ins í haust verði ekki bætt úr.“

Þannig hljóðar tit­ill bréfs sem Mat­væla­stofnun sendi Ásgeiri Pét­urs­syni, eig­anda Dals­bús­ins í Mos­fells­dal, í apríl síð­ast­liðnum. Í bréf­inu, sem Heim­ildin hefur undir höndum, er vísað til þess að í mars hafi MAST meðal ann­ars farið fram á að stofn­unin yrði upp­lýst um nöfn allra starfs­manna við minka­búið. „Þetta var gert vegna þess að stofn­unin hefur haft áhyggjur af því að starfs­menn bús­ins réðu ekki við að veita dýr­unum full­nægj­andi umönnun miðað við þann minka­fjölda sem þar er“, segir í bréf­inu. Þar segir einnig að kvartað hafi verið yfir að minkar slyppu frá búinu og að vel­ferð minkanna væri áfátt. 

„Hér með er varað við því að verði ekki gerð brag­ar­bót á rekstri Dalsbús í vor og sumar mun stofn­unin …
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Skrifað er að starfsmenn í búinu séu of fáir ?
    Hvað eru margir starfsmenn MAST að störfum , og hvað eru þeir að gera ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár