Ástralin Duncan Roberts Þýtur áfram á hjóla­bretti sínu. Mynd: Aðsend

Fer hringinn í kringum Ísland á hjólabretti

Duncan Roberts er að safna pen­ing fyrir sam­tök sem eru á móti hval­veiðum með því að fara hring­inn í kringum Ísland á hjóla­bretti. Ástr­al­inn stefnir á að klára ferða­lagið fyrir lok júní og geta áhuga­samir fylgst með hring­ferð­inni á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann deilir ferða­sögu sinni.

Hinn 38 ára gamli Duncan Roberts ferð­ast nú hring­inn í kringum Ísland á hjóla­bretti með 15 kílóa bak­poka. Til­gangur ferð­ar­innar, sem er 1.400 kíló­metrar, er að safna pen­ing fyrir sam­tökin Sea Shepard, meðal ann­ars til að fjár­magna bar­áttu þeirra gegn ólög­legum veiðum við strendur Vestur-Afríku. Duncan er afar umhugað um verndun sjávar og dýra­vel­ferð enda býr hann í sjáv­ar­þorp­inu Fingal Head við strönd Ástralíu og stundar þar brim­bretti af miklum krafti. 

Þegar Heim­ildin náði tali af Ástr­a­l­anum var hann að leggja af stað frá Djúpa­vogi með­fram aust­ur­strönd Íslands, áleiðis suður í átt að Reykja­vík. „Í dag mun ég ferð­ast á bil­inu 40–50 kíló­metra. Ég er heilan dag að því á hjóla­brett­inu á meðan flestir eru hálf­tíma að keyra þessa vega­lengd. Þetta mjakast áfram hjá mér,“ segir Duncan og hlær.

Eftir tíu ár í skrif­stofu­vinnu við mark­aðs­setn­ingu fann Duncan fyrir van­líðan. „Ég fann fyrir leiða og skorti inn­blástur. Með hverjum deg­inum sem leið varð erf­ið­ara að hundsa þrána til að kom­ast í burtu og upp­lifa allt það sem lífið hefur upp á að bjóða. Eins ógn­vekj­andi og það virk­aði ákvað ég að hætta í vinn­unni, halda út í hið óþekkta og að arka ófjöl­farn­ari veg.“

Duncan RobertsRúllar áfram.

Tíu klukkustundir á hjólabretti

Duncan ætlar að takast á við nýja áskorun árlega þar sem lík­am­leg hreyf­ing er í lyk­il­hlut­verki. „Ég vil láta gott af mér leiða. Á hverju ári ætla ég að takast á við nýja áskorun til að styrkja góð­gerð­ar­sam­tök. Þetta er fyrsta af mörgum áskor­unum. Ég átt­aði mig á því að lífið er stutt og við þurfum að gera það eft­ir­minni­legt.“

Markmið þess­arar áskor­unar er að safna 40.000 doll­urum, eða fimm millj­ónum íslenskra króna, fyrir ofan­greind sam­tök. Duncan birtir dag­legar upp­færslur af ferða­lag­inu á Instagram-síðu sinni: skatingforchange og á Facebook.

Aðspurður hvers vegna hann vildi að áskor­unin færi fram á Íslandi segir Duncan að nátt­úru­feg­urðin hafi heillað. „Ég valdi Ísland vegna þess að þegar þú ert á hjóla­bretti í tíu klukku­stundir dag­lega viltu vera í fal­legu lands­lagi og geta gleymt því hvað þetta er lík­am­lega erfitt. Það hafa fjórir aðrir farið hring­inn á hjóla­bretti, þannig að ég vissi að það væri hægt.“ Þegar Duncan klárar áskor­un­ina verður hann fyrsti Ástr­al­inn sem afrekar þennan merka áfanga. 

„Ég lagði af stað 23. maí og þurfti að fara á hjóla­brett­inu í gegnum gula veð­ur­við­vörun. Planið er að koma aftur til Reykja­víkur fyrir 30. júní.“ Duncan fór norð­ur­leið­ina og á því eftir að renna allt Suð­ur­landið áður en hann kemur í mark.  

Berst gegn hvalveiðum

Á sam­fé­lags­miðlum hefur Duncan gagn­rýnt hval­veiðar Íslend­inga og segir mik­il­vægt að fólk tali um þær, jafn­vel þó að það geti reynst mörgum erfitt enda takast þar ólík sjón­ar­mið á. „Þegar ég labba inn á bari í Sea Shepard bolnum mínum segir eldra fólk stundum: Þú ættir ekki að klæð­ast þessu, sam­tökin eru ekki vin­sæl hér.“ 

„Völdin liggja hjá stjórn­mála­fólki og þau eru að ákveða að sleppa því að banna hval­veiðar, þrátt fyrir að hafa öll sönn­un­ar­gögn sem þarf til að banna veið­arnar. Það er skömm vegna þess að einn maður og starfs­menn hans hagn­ast á veið­unum á meðan að restin af Íslend­ingum geldur fyrir flekkað orð­spor.“  Duncan seg­ist hafa séð mynd­bönd af hval­veiðum þar sem dýrin þjást í lengri tíma áður en næst að drepa þau. Hann harmar það að hval­veiðar haldi áfram í sumar og að mat­væla­ráð­herra stoppi veið­arnar ekki þrátt fyrir að hafa laga­lega heim­ild til þess. 

For­svars­menn sam­taka Kafteins Páls Watsonar sigla nú til Íslands með það að mark­miði að koma í veg fyrir að hval­veiða­fólki tak­ist að koma skutlum í hval­ina. 

Duncan RobertsStillir sér upp hjá vita með hjóla­brettið sitt.

Duncan vekur athygli

Hval­veiðar Íslend­inga gera áskorun Duncan enn þýð­ing­ar­meiri og hann leggur mikið á sig til að gef­ast ekki upp. Ökkli hjóla­brettagarps­ins er orð­inn aumur og því þarf hann að byrja alla daga á að vefja ökklann og teygja vel. „Um dag­inn fór ég 75 kíló­metra sem hljómar kannski ekki eins og mikið en þegar þú ert á hjóla­bretti er það löng vega­lengd, enda tók það mig tíu sam­fleyttar klukku­stundir.“

For­vitnir veg­far­endur stoppa á þjóð­veg­inum til að taka myndir af Duncan. „Fólk er svo áhuga­samt að það getur orðið sjálfu sér hættu­legt. Sumir stoppa á miðjum þjóð­veg­inum. Þá hugsa ég: Haltu áfram! Þú mátt ekki stöðva bif­reið­ina þarna,“ segir Duncan en margir Íslend­ingar hafa sýnt áskor­un­inni mik­inn áhuga og trúa því vart að íþrótta­kapp­anum sé að takast þetta.

Vænta má þess að Duncan birti þriggja þátta seríu á Youtube um ævin­týri sitt á Íslandi seinna í sumar þegar hann kemur heim til Ástralíu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár