Bílstjóri rútu virðist ekki hafa hitt rétt á brú

Rúta með fimmtán manns inn­an­borðs valt út af brúnni á Vind­heima­vegi yfir Hús­eyj­ar­kvísl í Skaga­firði í gær. Sex manns voru fluttir á sjúkra­hús en hlúð að öðrum í hús­næði Flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar í Varma­hlíð.

Bílstjóri rútu virðist ekki hafa hitt rétt á brú
Verð­mætum bjargað Björg­un­ar­sveit­ar­menn úr Varma­hlíð komu ferða­fólk­inu í fjölda­hjálp­ar­stöð og björg­uðu síðan far­angri þeirra úr rút­unni. Mynd: Landsbjörg

Sex erlendir ferða­menn voru fluttir á sjúkra­húsið á Akureyri um miðjan dag í gær eftir að rúta valt ofan í Hús­eyj­ar­kvísl, á brúnni yfir ána á Vind­heima­vegi. Í rút­unni voru fimmtán manns, flestir Banda­ríkja­menn. Þeir sem fluttir voru á sjúkra­hús kvört­uðu yfir eymslum, togn­unum og hugs­an­lega bein­brotum. Ekki er vitað um til­drög slyss­ins að svo stöddu.

Skjótt við­bragðFjórtán manns frá Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Varma­hlíð komu að aðgerð­inni á mið­viku­dag­inn, ásamt lög­reglu og sjúkra­liði.

„Brúin er ekki breið en hann fer mjög hægt að henni, það var eng­inn gassa­gangur í því. Það var svo­lítið skrýtið að sjá þetta, ein­hvern veg­inn virð­ist rútan bara hafa dottið út af brúnni þegar hún kom inn á hana. Bíl­stjór­inn virð­ist bara hitta illa inn á brúna og fara út af henni þess vegna,“ segir Þor­steinn Frímann Guð­munds­son, vara­for­maður í Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Varma­hlíð, sem kom að aðgerðum á svæð­inu.

Slys­stað­ur­inn er um átta kíló­metra frá Varma­hlíð en um 35 kíló­metra frá Sauð­ár­króki þaðan sem lög­regla og sjúkra­bílar komu. Björg­un­ar­sveit­ar­menn komu hins vegar úr Varma­hlíð og nágrenni og segir Þor­steinn að við­bragðið hafi verið fremur hratt. „Fólkið bar sig nú nokkuð vel, auð­vitað var það skelkað, bæði við velt­una og eins að lenda ofan í ánni og fá á sig vatnið. Það voru allir komnir upp þegar fyrstu við­bragðs­að­ilar komu en auð­vitað var fólkið blautt og því kalt. Það bjarg­aði því hvað það var gott veður, sól og fimmtán stiga hiti.“ Spurður á hvaða ferða­lagi rútan hafi verið segir Þor­steinn að hann telji lík­leg­ast að leið­inni hafi verið heitið upp að Reykja­fossi sem er skammt í burtu og að Fosslaug, sem er heit nátt­úru­laug gegnt foss­inum.

„Bíl­stjór­inn virð­ist bara hitta illa inn á brúna og fara út af henni þess vegna“
Þor­steinn Frímann Guð­munds­son
vara­for­maður Flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar í Varma­hlíð

Fólkinu fannst það í öruggum höndum

Þor­steinn Frímann Guð­munds­son

Við slysið var hópslysa­á­ætlun í Skaga­firði virkjuð. Sá hluti hóps­ins, níu manns, sem ekki þurfti að flytja með sjúkra­bílum á sjúkra­hús, var fluttur í hús­næði Flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar í Varma­hlíð þar sem komið var upp fjölda­hjálp­ar­mið­stöð. „Við komum þeim í þurr föt og teppi, buðum þeim upp á kaffi og mat og Rauði kross­inn veitti áfalla­hjálp. Í þessu til­viki fólst það nú kannski fyrst og fremst í að ræða við fólk og dreifa hug­anum, því það urðu ekki alvar­leg slys á fólki. Engu að síður er áfall að lenda í slysi eins og þessu. Það er líka bót í máli að fólk­inu leið vel og fannst það í öruggum höndum,“ segir Þor­steinn.

Virðist hafa hitt illa á brúnaAðstæður voru hinar bestu á í gær, sól og 15 stiga hiti, svo að lík­indum voru það ekki þær sem ollu slys­inu.

Slysið varð um tvöleytið á í gær og að sögn Þor­steins stóð aðgerðin á vett­vangi í um það bil tvo tíma, með því að koma fólk­inu í skjól og bjarga verð­mætum úr rút­unni. Aðgerðin í heild sinni stóð hins vegar til níu að kvöldi, en þá var búið að koma öllu fólk­inu í svefn­stað á Akureyri og við­bragðs­að­ilar komnir heim.

Þor­steinn hefur starfað í björg­un­ar­sveit­inni um áraraðir og var for­maður hennar í yfir ára­tug, allt þar til síð­asta vetur þegar hann færði sig í emb­ætti vara­for­manns. Hann hefur því upp­lifað þá miklu fjölgun ferða­manna á land­inu í störfum sínum. Spurður hvort að það hafi haft í för með sér aukn­ingu á slysum af þessu tagi segir Þor­steinn að hann telji að slysum eins og því sem varð í gær hafi ekki fjölgað. „Við höfum fengið tölu­vert fleiri útköll þar sem ferða­fólk lendir í vand­ræðum, vegna þess að það hefur fest bíla sína, farið út af og lent í vand­ræðum. Við erum hins vegar mjög með­vituð um það hversu mikil aukn­ing er á umferð og þess vegna hafa verið gerðar hópslysa­á­ætl­anir sem hægt er að grípa til.“

Betur fór en á horfð­istEkki urðu alvar­leg slys á fólki en flytja þurfti sex manns á sjúkra­hús.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár