Hér má sjá Vigdísi Hjort sem hefur skrifað yfir tutt­ugu skáld­sögur. Mynd: Klaudia Lech

Ég skrifa skáldsögur

Gluggi opn­ast á Zoom inn í fal­legt timb­ur­hús í Asker, á eyju undan ströndum Noregs þar sem Vigdís Hjort býr með börnum sínum og hundi. Í bak­grunni blóm og bækur, og litir. Hún er fædd 1959 og hefur skrifað frá því hún var 22 ára, hóf feril sinn með því að gefa út barna­bækur en hefur síðan skrifað yfir tutt­ugu skáld­sögur. Ég byrja á að spyrja hvernig tengsl hennar við skrifin hafi þró­ast í gegnum árin.

Þau hafa breyst en kannski ekki svo mjög. Stóra breyt­ingin er senni­lega við­fangs­efnið. Þegar ég var tutt­ugu og tveggja ára þá vissi ég ekki mikið um heim­inn, og ekki heldur um fjöl­skyldur eða þjóð­fé­lagið eða póli­tík. Ég hefði ekki getað skrifað um margt af því sem ég geri núna. Og það var þess vegna held ég sem ég byrj­aði á því að skrifa barna­bækur. Mér fannst eins og ég væri meira við stjórn­völ­inn á þeim vett­vangi. Mig lang­aði til að skrifa stóra skáld­sögu um þjóð­fé­lagið og stjórn­mál en ég var of ung. En ég held að skrifin sjálf séu í raun frekar svipuð. Efnið sem ég tek fyrir er hins vegar flókn­ara.

Hvernig ferðastu frá einni skáld­sögu til þeirrar næstu?

Ég get ekki unnið að mörgu í einu, ég helli mér í skrifin af miklum krafti og efnið hel­tekur mig. Það byrjar yfir­leitt með ein­hverjum innri átökum, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2023

Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...
ViðtalBókmenntahátíð 2023

Mósaík stór­stjarna á bók­mennta­há­tíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Nú, þegar far­fuglar flykkj­ast til lands­ins, er að skella á Bók­mennta­há­tíðin í Reykja­vík en hún hefst 19. apríl með ævin­týra­lega til­komu­mik­illi dag­skrá – eins og alltaf. Þunga­vigt­ar­höf­undar á heims­mæli­kvarða streyma til lands­ins og land­anum gefst færi á að spyrja þá spjör­unum úr, plata þá til að skrifa á bækur og heyra þá fjalla um verk sín.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár