<span>Skýrslutaka yfir föður ríkislögreglustjóra:</span> „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“
Leyni­hólf í eld­húsinn­rétt­ing­unni Við hús­leit og skýrslu­töku yfir Guðjóni sagð­ist hann ekk­ert hafa að fela og aldrei hafa heyrt á menn sem hand­teknir voru vegna hryðju­verkaógnar minnst. Hann vís­aði lög­reglu á leyni­hólf í eld­húsinn­rétt­ingu á heim­ili sínu. Ekki kemur fram í skýrslu yfir Guðjóni hvort eitt­hvað fannst í því leyni­hólfi. Mynd: Stundin

Skýrslutaka yfir föður ríkislögreglustjóra: „Ef þið bara hefðuð skoðað hver skyldmenni mín eru, þá hefðuð þið ekki komið hingað“

Menn sem grun­aðir eru um að hafa verið að skipu­leggja hryðju­verka­árás hér á landi báru við yfir­heyrslur að hálf­sjálf­virkt skot­vopn í þeirra fórum væri fengið frá Guðjóni Valdi­mars­syni, vopna­sala og föður rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hefði Guðjón keypt þrí­vídd­ar­prentað skot­vopn af einum mann­anna. Guðjón sagði við skýrslu­töku að annað hvort hefðu lög­reglu­menn ekki kynnt sér ætt­ar­tengsl hans eða verið væri að reyna að koma höggi á rík­is­lög­reglu­stjóra. Stundin hefur skýrsl­una undir höndum.

Guðjón Valdi­mars­son, faðir Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra og vopna­sali, var í yfir­heyrslum yfir mönnum sem grun­aðir eru um að hafa haft hryðju­verk í und­ir­bún­ingi, sagður hafa lánað frá sér hálf­sjálf­virkt skot­vopn sem menn­irnir höfðu undir höndum. Þá var hann einnig sagður hafa keypt þrí­vídd­ar­prent­aða byssu af mönn­unum og greitt fyrir það 400 þús­und krónur í reiðufé.

Þessu öllu hafn­aði Guðjón stað­fast­lega í skýrslu­töku hjá lög­reglu, sem tekin var á heim­ili Guðjóns á sama tíma og hús­leit fór þar fram. Fullyrt hefur verið að tugir vopna sem hann gat ekki gert grein fyrir hafi fund­ist við þá hús­leit.

Guðjón vís­aði ítrekað til dóttur sinnar, Rík­is­lög­reglu­stjór­ans, í skýrslu­tök­unni og sagði að ef lög­reglu­menn­irnir hefðu vitað um tengsl þeirra hefðu þeir aldrei komið á heim­ili hans.

„(N)ema það sé bara ein­hver hefnd­ar­ráð­stöfun gagn­vart dóttur minni. Það er eina sem ég get séð út úr þessu, því ég hef ekk­ert að …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Engu líkara en hér hafi verið gripið í punginn á mafíunni
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hvernig voru öll þessi skotfæri flutt inn fleiri þúsund byssuskot framhjá tollinum?
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér er öllun lokið. Í flestum réttarríkjum er skýrslu sem tekin er af lögreglunni haldið leyndri uns réttarhöld fara fram. Hér er skýrslan gerð opinber í fjölmiðlum og það er varla hægt nema að lögreglan sjálf standi á bak við. Er það tilgangurinn að eyðilegga framburðinn þannig að ekki sé hægt að nota hann fyrir rétti? Er lögreglan að hylma yfir eitthvað? Er hún að leggja grunninn að því að maðurinn verði ekki ákærður? Niðurstöður lögreglurannsóknar eiga að koma fram við opinber réttarhöld ekki fyrr.
    Sá seki á rétt á friðhelgi svo lengi sem hann er ekki dæmdur. Það verður að fara fram rannsókn á því hverning þetta mál komst í fjölmiðla. Fjölmiðlarninr hafa enga sök - þeir eiga að birta þær upplýinga sem þeir fá.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hljóta að vera helgustu vé mafíunnar sem eru kominn þarna upp á yfirborðið. Kókaín kafboys?_Uhuhhu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hryðjuverkaógn á Íslandi

Flest vopnanna sem haldlögð hafa verið í rannsókn á hryðjuverkaógn löglega skráð
FréttirHryðjuverkaógn á Íslandi

Flest vopn­anna sem hald­lögð hafa verið í rann­sókn á hryðju­verkaógn lög­lega skráð

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur sagt sig frá rann­sókn­inni vegna fjöl­skyldu­tengsla við ein­stak­ling sem hefur verið nefndur í tengslum við rann­sókn lög­reglu á ætl­aðri skipu­lagn­ingu hryðju­verka. Gæslu­varð­halds­úr­skurður yfir öðrum mann­anna sem situr í varð­haldi vegna máls­ins hefur verið fram­lengdur um viku.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár