Endalaust kveðjupartí í Kænugarði

Þrátt fyrir að hafa verið rúma tvo mán­uði í Úkraínu er þetta í fyrsta sinn sem ég sé fólk hér smeykt.

Endalaust kveðjupartí í Kænugarði

Þrátt fyrir að hafa verið rúma tvo mán­uði í Úkraínu er þetta í fyrsta sinn sem ég sé fólk hér smeykt. Sumir segja að best sé að læsa sig inni á kló­setti til að forð­ast að fá í sig rúðu­brot ef glugg­a­rnir springa, aðrir að betra sé að vera frammi á gangi til að eiga auð­veld­ara með að kom­ast út ef bygg­ingin fer að hrynja. Tungu­mála­kenn­ari minn segir að örugg­ast sé að mæta ekki í skól­ann þennan dag­inn þar sem hann sé í grennd við höf­uð­stöðvar leyni­þjón­ust­unnar SBU sem gæti orðið skot­mark. Sjálf ætlar hún að heim­sækja for­eldra sína í öðrum lands­hluta. 

Sá dagur sem veldur fólki áhyggjum er ann­ars iðu­lega fagnað hér í borg. Þann 24. ágúst er þjóð­há­tíð­ar­dagur og er því fagnað að 31 ár eru liðin frá því Úkraína lýsti yfir sjálf­stæði, í sömu viku og Eystra­salts­löndin gerðu slíkt hið sama með aðstoð Íslend­inga. Það tókst hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár