Sonur minn er klámfíkill

Móðir ung­lings­drengs, sem þró­aði með sér klám­fíkn þegar hann var 13 ára, er þakk­lát stúlku sem sagði frá því að hann hefði dreift kyn­ferð­is­legum myndum af henni. Hún segir ómögu­legt að segja til um hvernig hegð­unin hefði þró­ast hefði stúlkan ekki látið vita. Eyjólfur Örn Jónsson sál­fræð­ingur hefur haft níu ára gömul börn til með­ferðar vegna klá­m­á­horfs.

Sonur minn er klámfíkill
Fékk stuðn­ing Dreng­ur­inn kemur ekki fram undir nafni og myndir eru svið­settar. Hann fékk stuðn­ing barna­verndar til að taka á vand­anum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er þakk­lát stúlkunni sem sagði frá því að hann hefði dreift myndum af henni. Það hefur örugg­lega ekki verið auð­velt fyrir hana.“ Þetta segir móðir ung­lings­drengs, sem þró­aði með sér klám­fíkn þegar hann var 13 ára og dreifði kyn­ferð­is­legum myndum af jafn­öldrum sínum. Hún segir ómögu­legt að segja til um hvernig þessi hegðun hefði þró­ast hefði stúlkan ekki látið vita. Eyjólfur Örn Jónsson sál­fræð­ingur segir klám­fíkn ung­menna falið vanda­mál og hann hefur haft níu ára gömul börn til með­ferðar vegna klá­m­á­horfs.

„Við for­eldr­arnir höfðum haft áhyggjur af honum í nokkurn tíma. Hann var kom­inn í nýjan félags­skap stráka sem við þekktum ekki, ein­kunnum hans hafði hrakað, hann var orð­inn hortugur og lyg­inn og komst ítrekað upp á kant við fjöl­skyldu, vini og kenn­ara. Í þokka­bót var hann grip­inn við að veipa. Við höfðum rætt við sál­fræð­ing skól­ans, sem gerði mat á honum þar sem ekk­ert athuga­vert kom fram. Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár