Mótmælt Banda­rískum stjórn­völdum mót­mælt í Teheran árið 2018. Mynd: Shutterstock

Vítahringurinn í Íran

Íran er ríki sem hefur verið áber­andi í fjöl­miðlum undan­arið án þess að mikið sé reynt að kafa undir yfir­borðið. Ótti við að styrj­öld brjót­ist út á svæð­inu fer vax­andi og mörg ólík hags­muna­öfl hafa hag af því að kynda bálið, allt frá klerkum í Sádi-Arabíu til hnetu­bænda í Kali­forníu. Inn­byrðis er íranskt sam­fé­lag oft mót­sagna­kennt og þjóðin er djúpt klofin í afstöðu sinni til nútím­ans, umheims­ins og þeirra brenn­andi vanda­mála sem blasa við í náinni fram­tíð. Það er þó stríðið, sem sífellt vofir yfir, sem á end­anum kemur í veg fyrir fram­farir.

Íranir eru í dag rúm­lega 80 millj­ónir og eru afkom­endur Persa en veldi þeirra ríkti yfir stórum hluta Asíu í meira en tvö þús­und ár. Einn mik­il­væg­asti atburður í sögu íslam sem trú­ar­bragða varð snemma á 16. öld þegar Persa­veldi tók form­lega upp sjía-íslam sem opin­bera trú. Fyrir vikið er Íran óum­deild menn­ing­ar­leg og trú­ar­leg mið­stöð allra sjía-múslima í heim­inum en þeir eru um sjö­undi hluti allra múslima og alls rúm­lega 200 millj­ónir tals­ins í dag. 

Í póli­tísku umróti í byrjun 20. aldar tókst her­for­ingja að nafni Reza Pahlavi að ræna völdum í hinu ört hnign­andi veldi og ríkti sem sjálf­skip­aður keis­ari þrátt fyrir að eiga ekk­ert til­kall til þess tit­ils. Sonur hans, Mohammed Reza Pahlavi, tók við völdum á fimmta ára­tugnum fyrir til­stilli Breta, sem höfðu mik­illa hags­muna að gæta í olíu­iðn­aði lands­ins og litu á nýja kóng­inn sem sinn mann.

Hann inn­leiddi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár