Pakkaði niður í tvo litla bakpoka og hélt á vit ævintýranna

Íris Ösp Heiðrún­ar­dóttir seg­ist lengi hafa verið heilluð af lík­am­anum, hreyf­ingu hans og formum og hefur hún nú fengið útrás fyrir þann áhuga í gegnum mynd­list og iðkun á yoga.

Íris Ösp Heiðrúnardóttir
Íris Ösp Heiðrún­ar­dóttir Mynd: Aðsend mynd

YOGER er spila­stokkur með 52 mis­mun­andi vatns­mál­uðum yoga­stöðum til heima- eða ferða­laga­æf­inga. Útskýr­ingar eru á hverju spili og nöfn á bæði sanskrit og íslensku. Spilinu fylgja níu rútínur en mögu­leik­arnir eru enda­lausir. Íris Ösp Heiðrún­ar­dóttir hefur þróað og teiknað þennan nýja spila­stokk og safnar hún nú fyrir verk­efn­inu á Karolina­fund. 

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Ég hef lengi verið heilluð af lík­am­anum, hreyf­ingu hans og formum og hef fengið útrás fyrir þann áhuga minn í gegnum mynd­list og iðkun á yoga.

Í byrjun árs urðu smá breyt­ingar í lífi okkar Kaali, kærastans míns, og ákváðum við að taka þeim breyt­ingum fagn­andi með því að segja upp húsa­leig­unni, selja allt okkar haf­urtask, pakka niður í tvo litla hand­far­ang­urs­bak­poka og halda á vit ævin­týr­anna. Tveimur vikum seinna vorum við komin til Barcelona þar sem ég hóf loks­ins yoga­kenn­ara­nám sem hefur verið draumur í langan tíma. Við dvöldum í Barcelona í þrjá mán­uði og gerðum lítið annað en að iðka yoga og njóta þess að vera til. Þegar ég útskrif­að­ist í maí lá leiðin til Asíu til að læra enn meira um iðkun­ina, hug­mynd­ina á bak við yoga og trú­ar­brögðin sem fólk á til að blanda við iðkun­ina og hug­leiðslu.

[adspot]

Við dvöldum meðal ann­ars í nokkra daga í Ashram í Indónesíu, þar sem við lærðum heil­mikið um hindúisma, hug­leiddum í marga tíma á dag og sungum mön­trur. Með því að kynna mér bæði trú­ar­brögðin, vest­rænu iðkun­ina og annað sem teng­ist yoga í þeirri stóru mynd sem það er, fannst mér ég loks­ins geta myndað mér mína eigin skoðun til að verða að þeim yoga­leið­bein­anda sem að mig langar að vera.

Þegar við komum til Víetnam gaf ég mér loks­ins tíma til að gramsa eftir vatns­máln­ing­unni neðst í bak­pok­anum. Ég sett­ist niður í skjóli úti í grenj­andi rign­ingu og það eina sem komst niður á blað var yoga, ég er rosa mikið búin að vera með yoga á heil­anum allt þetta ár.

Þegar ég kom heim til Íslands lang­aði mig að gefa mál­verk­unum frá Víetnam frekara líf og YOGER var það fyrsta sem mér datt í hug. Án þess að hugsa mig tvisvar um hófst ég handa við að mála fleiri stöður sem búa til alls konar rútínur. Ég vissi eig­in­lega ekki af mér fyrr en stöð­urnar voru til­búnar og ég búin að heim­sækja allar prent­smiðj­urnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, skoða pakkn­ingar og alls­konar teg­undir af mis­gl­ans­andi pappír. Allt í einu er hug­myndin mín orðin að veru­leika. Yoga mynd­irnar sem ég vatns­mál­aði fá allar frekara líf á heim­ilum hér og þar og svona næ ég von­andi að kveikja áhuga fólks á yoga, hreyf­ingu og núvit­und.

Fyrsta útgáfa af spil­unum verður á íslensku en ég get von­andi gefið þau út á fleiri tungu­málum, til dæmis ensku og dönsku á næsta ári og jafn­vel fleiri yoga- og mynd­list­ar­tengd verk­efni.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins.

YOGER er í grunn­inn spila­stokkur með 52 spilum sem hægt er að spila með; jógerum, gosum, drottn­ingum og kóngum. Á hverju spili er ein­stök vatns­máluð yoga­staða og hnit­miðuð útskýr­ing um hverja stöðu fyrir sig. Ég hef útbúið níu rútínur sem fylgja spil­inu, hjarta spilin (í röð frá A-K) leggja til dæmis áherslu á öfugar stöður, hjarta­stöð­ina og blóð­flæði. Spaða spilin leggja áherslu á styrk fyrir kvið­vöðva og læri. Tígull á almennar styrkt­ar­stöður, kvið og efri lík­ama og lauf á jafn­vægi og opnun á til­finn­inga­stöðvar. Hver staða leggur síðan áherslu á ákveðna eig­in­leika sem þekkja má af lit fatn­að­ar­ins á hverju korti fyrir sig en flestar stöður hafa fleiri en einn eig­in­leika.

Spilin eru örlítið stærri en almennur spila­stokkur en samt sem áður í þægi­legri stærð sem hægt er að taka með í ferða­lagið sem mig lang­aði að leggja áherslu á.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár