Hermann Stefánsson

Hermann Stefánsson

Hermann Stefánsson er rithöfundur og býr í Reykjavík. Hann er höfundur fjórtán bóka sem flestar eru skáldsögur. Hermann nam bókmenntir í Háskóla Íslands og háskólanum í Santiago á Spáni. Hann hefur skrifað pistla um samfélagsmál og pólitík á ýmsum vettvangi en er óflokksbundinn af ástríðu.

Sjálf­hverf menn­ing og mál­villur: Örlítið um ruv.is

Gallinn við að búa í örsam­fé­lagi er að þess er kraf­ist að allir séu hel­teknir af því sama. Það hefur sína kosti, svo sem sam­stöðu. Það hendir ekki hjá stór­þjóðum að fram fari þjóð­ar­söfnun í sjón­varpi fyrir ein­hvern mál­stað og for­múgur safn­ist. Það hendir varla hjá stór­þjóðum að fullt af fólki riti nafn sitt á und­ir­skrift­ar­lista til að koma í...

Um Fernando Pessoa og þörf­ina fyrir að skilja ekki heim­inn

Það er orðið nokkuð síðan Guð­bergur Bergsson sendi frá sér þýð­ingu. Skáldið er eitt skrípa­tól: Um ævi og skáld­skap Fernando Pessoa nefn­ist útgáfa hans á úrvali verka portú­galska ljóð­skálds­ins Fernando Pessoa. Þess virði er að nefna að bókin er vel útgefin: Rauð og svört kápa með teikn­ingu af Pessoa, harð­spjalda, svarti lit­ur­inn á inn­kápu­síðum hittir á eitt­hvert gull­in­snið og tónar...

Morð á konum og/eða stuldur á rabar­bara

Ein margnot­að­asta til­vitnun heims­bók­mennt­anna er í smá­sögu eftir Jorge Luis Borges og snýst um það hvernig hlutir eru flokk­aðir, hvernig við setjum heim­inn og hug­myndir okkar um hann í kvíar. Borges vísar í upp­diktaða kín­verska alfræði­orða­bók sem flokkar dýr nokkurn veg­inn á þessa lund: „Dýr sem tiheyra keis­ar­anum. Smurð dýr. Tamin dýr. Grísir á spena. Haf­meyjur (eða sírenur). Goð­sögu­leg dýr. Flæk­ings­hundar. Dýr sem talin eru upp í...

Barnið og skradd­ar­arnir

Sögur í kap­ít­al­ísku ein­stak­lings­hyggju­sam­fé­lagi snú­ast um ein­stak­ling — erkitýpu — sem sprettur úr fábrotnum jarð­vegi og haslar sér völl, leggur af stað í óvissu­ferð, berst og hefur að lokum sigur, gegn ofurefli. Fyr­ir­sjá­an­leg­asti (en ekki áhuga­verð­asti) þátt­ur­inn í sög­unni um Gretu Thunberg snýst um að karlar með brogað sál­ar­líf snú­ist gegn henni, hæði hana og spotti, rægi og níði. Sögu­gerðin...

Þjófur í Paradís

Tegundir sós­í­al­isma eru tvær: Hug­sjónasós­í­al­ismi og öfund­arsós­í­al­ismi. Sá fyrr­nefndi er háleit hug­mynd um rétt­lát­ara sam­fé­lag, sá síð­ar­nefndi er nag­andi vit­und um að annað fólk eigi miklu meiri pen­inga en maður sjálfur, og að það væri bæri­legt að vera í röðum pró­sent­anna fáu (pró­sents­ins eina?) sem eiga mestu pen­ing­ana. (Sjá t.d. skrif Gunnars Smára Egils­sonar). Tekju­blöð hafa yfir­leitt verið gefin út...

Við­skipta­vit Araba

Arabar hafa miklu lengri við­skipta­hefð en Vest­ur­landa­búar og því eru versl­un­ar­hættir þeirra sið­fág­aðri — en að mati Vest­ur­landa­búa dólgs­legir. Arabinn (þetta er ágætt orð, ég hef ekki annað betra) gerir sér að for­sendu í við­skipt­unum að verð­gildi hlut­ar­ins liggi hreint alls ekki fyrir. Þar getur ýmis­legt spilað inn í. Ekki bara vinnu­stund­irnar sem fóru í að fram­leiða hlut­inn heldur einnig...

Um jákvæðar hliðar tíðra fjöldamorða í Banda­ríkj­unum

Fjöldamorð eru að verða þjóðar­í­þrótt Banda­ríkja­manna. Þau eru inn­an­húss­í­þrótt — og það sem merki­legra er: Í og með er þau hóp­í­þrótt fremur en hrein ein­stak­lings­í­þrótt. Raunar var for­veri íþrótt­ar­innar á 20. öld, að skjóta banda­ríska for­seta, næsta keim­lík en þó hafa þær hug­mynda­legu breyt­ingar orðið í vit­und­ar­lífi þjóð­ar­innar að for­ver­inn gat ekki verið annað en ein­stak­lings­í­þrótt: Einn á móti einum....

Mest lesið undanfarið ár