Hellisbúinn

Hellisbúinn

Ellert Grétarsson er áhugamaður um náttúruvernd, útivist í íslenskri náttúru, hellamennsku og jarðfræði, ljósmyndun, kvikmyndagerð, rafeindafræði og dróna. Og tekst oft að tengja þetta flest með einhverjum hætti.

Endalok fágætrar nátt­úruperlu - videó

Nátt­úruperlan Eldvörp á Reykja­nesi er algjör­lega ein­stök. Úr einum aðal­gígnum í miðri gíga­röð­inni, sem er um 10km löng, og í hraun­inu umhverfis, rýkur jarð­hit­inn eins og gosi sé nýlokið. Gígarnir mynd­uð­ust hins vegar í mik­illi eld­gosa­hr­inu sem skók Reykja­nesið á 13. öld. Jarð­gu­fan sveipar umhverfið allt mik­illi dulúð og gerir þessa nátt­úruperlu svo kynn­gi­magn­aða að erfitt er að lýsa því...

Smartheit Ragn­heiðar Elínar

„Ég verð að við­ur­kenna að mér hefði fund­ist smart­ara ef Björk hefði notað þetta tæki­færi til að hvetja til sam­starfs og sam­tals um þessi mik­il­vægu mál.“ sagði Ragn­heiður Elín á Facebook. Það var ekki mjög smart þegar Ragn­heiður Elín gekk erinda Lands­nets gegn nátt­úru Reykja­nesskag­ans og land­eig­endum á Vatns­leysu­strönd þegar hún heim­il­aði Lands­neti eign­ar­nám á löndum þeirra undir Suð­ur­nesja­línu 2....

Zimbabwe norð­urs­ins

„Þið megið kjósa um þetta en við ætlum ekki að taka mark á nið­ur­stöð­unni ef hún er okkur ekki þókn­an­leg“ Þetta er inn­takið í nýlegum yfir­lýs­ingum og skila­boðum bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar til okkar bæj­ar­búa vegna íbúa­kosn­ingar um kís­il­mál­verk­smiðju Thorsil í Helguvík. Þarna er bæj­ar­stjór­inn að beita ákveð­inni taktík sem ætlað er að draga úr áhuga og vilja bæj­ar­búa til...

Mesta ógnin við íslenska nátt­úru

„It´s hor­ri­fy­ing that we have to fight our own govern­ment to save the environ­ment“. Þessi orð nátt­úru­ljós­mynd­ar­ans Ansel Adams komu upp í huga minn að morgni Dags íslenskrar nátt­úru. Þau ríma vel við íslenskan veru­leika því stærsta ógnin við íslenska nátt­úru eru póli­tíkusar. Bæði á þingi og í sveit­ar­stjórnum sitja upp til hópa hags­muna­hórur stór­iðju- og verk­taka­fyr­ir­tækja. Hags­munir...

Nátt­úruparadísin í hlað­varp­anum

Reykja­nesskag­inn býr yfir mörgum mögn­uðum nátt­úruperlum í námunda við mesta þétt­býli lands­ins. Svæðið hefur að geyma fjöl­breytta nátt­úru og for­vitni­lega jarð­fræði. Mögu­leik­arnir til útvistar og nátt­úru­upp­lif­unar eru ótelj­andi í nálægð við þétt­býlið. Í því fel­ast verð­mæt lífs­gæði. Nátt­úru­auð­lind er ekki ein­göngu sú sem hægt er að bora til fjand­ans eða sökkva í uppi­stöðu­lón. Lítt snortin nátt­úra er líka auð­lind. Ef...

Fólk­vangur í rusl­flokki

Með­fylgj­andi myndir tók ég í gær í Seltúni þegar ég kom gang­andi af Sveiflu­háls­inum eftir Ket­il­stíg. Sveiflu­háls­inn er í miklu upp­á­haldi hjá mér með sínar mögn­uðu móbergs­mynd­anir og hálend­is­lands­lag. Alveg stór­kost­legt göngu­land sem og Krýsu­víkur- og Trölla­dyngju­svæðið allt, sem er innan Reykja­nes­fólk­vangs. Ekki er óal­gengt að þessi sjón mæti manni í Seltúni en hvera­svæðið þar dregur að sér sífellt fleiri...

Yfir­lýs­ing

Und­an­farið hef ég verið að und­ir­búa ljós­mynda­sýn­ingu sem stóð til að setja upp í Lista­safni Reykja­nes­bæjar á Ljósa­nótt. Þótti mér mik­ill heiður að þessu tæki­færi enda er Ljósanæt­ur­sýn­ing Lista­safns­ins jafnan fjöl­sóttasta sýn­ing árs­ins. Ætlaði ég þar að sýna afrakstur 10 ára vinnu sem fólst í því að ljós­mynda þá stór­brotnu nátt­úru sem Reykja­nesskag­inn hefur að geyma. Vil ég þakka Valgerði...

Ein­stakar nátt­úru­minjar eyði­lagðar

Skammt vestan við Bláa lónið og Svarts­engi er að finna magn­aðar gosminjar frá Reykja­nes­eldum á 13. öld. Þetta eru Eldvörp, röð gos­gíga sem teygja sig 10 kíló­metra frá norð­austri til suð­vest­urs eftir sprungu­stefn­unni sem ein­kennir eld­stöðv­arnar á vest­an­verðum Reykja­nesskag­anum. Í jarð­sögu Íslands hafa sprungu­gos flest orðið undir jökli og skilið eftir móbergs­mynd­anir eins og hina áhuga­verðu móbergs­hryggi en slíkar jarð­mynd­anir...

Verða íbúar Reykja­nes­bæjar fluttir í burtu?

Myndin hér að ofan er af Facebook-síðu sem ber heitið Helguvík: Vilt þú njóta vafans? Að síð­unni stendur hópur bæj­ar­búa í Reykja­nesbæ sem vill vekja íbúa bæj­ar­ins til vit­undar um þá miklu stór­iðju sem fyr­ir­hugað er að koma upp í Helguvík og hugs­an­legar afleið­ingar hennar fyrir heilsu og vel­ferð manna og dýra. „Út í Helguvík“ hljómar kannski svo­lítið fjar­rænt...

Bönnum dróna en kúkum í þjóð­ar­ger­sem­ina

Þing­valla­nefnd vill banna „ónæð­is­flug“ í þjóð­garð­inum, sam­kvæmt fréttum. Útsýn­is­flug verði tak­markað og notkun dróna með öllu bönnuð. Nefndin hefur áhyggjur af því að þessar fljúg­andi, suð­andi mynda­vélar valdi ferða­fólki ónæði. Það kann svo sem eitt­hvað að vera til í því en samt finnst mér að Þing­valla­nefndin ætti að eyða tíma sínum og orku í að leysa annan og miklu stærri...

Mest lesið undanfarið ár