AK-72

AK-72

Agnar Kristján Þorsteinsson hefur bloggað árum saman um stjórnmál og önnur samfélagsmál undir bloggheitinu AK-72. Á milli þess gjóar hann augunum að kvikmyndum, sagnfræði og öðru því sem vekur áhuga hans hverju sinni.

Legókubbaleikur for­sæt­is­ráð­herra með Land­spít­al­ann

Ég ætla að játa það strax að ég hef ekki haft hingað til voða­lega mikla skoðun á því hvar væri best að hafa nýjan Lands­spít­ala né hvernig á að byggja hann. Það hef ég áltið hingað til vera verk­efni sér­fræð­inga og heil­brigð­is­geirans að útfæra. Samt hef ég þó nokkra skoðun á þeirri hug­dettu bæj­ar­stjóra Garða­bæjar og for­sæt­is­ráð­herra í ein­hverjum Legókubbaleik...

Gleði­tíð­indi Vigdísar Hauks­dóttir

„Þessi rík­is­stjórn hefur haft heil­brigð­is­málin í algjörum for­gangi síðan hún tók við og það hefur sýnt sig í fjár­laga­gerð hvers árs og svo voru að ber­ast þau ánægju­legu tíð­indi að Ísland er í 8. sæti af ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins með hvað besta heil­brigð­is­þjón­ustu. Það voru gleði­leg tíð­indi." Þessi orð lét Vigdís Hauks­dóttir falla á alþingi í umræðum um und­ir­skrifta­lista Kára...

Fjár­mögnun bætts heil­brigð­is­kerfis

Viðbrögð Sjálf­stæð­is­þing­manna við und­ir­skrifta­lista Kára Stef­áns­sonar um að veitt verði meira fé í heil­brigð­is­kerfið hafa verið á einn veg. Söfn­un­inni hefur verið mætt með and­spyrnu enda er þetta mark­mið und­ir­skrifta­söfn­un­innar and­stætt mark­miði Sjálf­stæð­is­flokks­ins um eyði­legg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins í átt til einka­vina­væð­ingar. Sú and­spyrna hefur birst í hræðslu­á­róðri um að þetta þýddi skatta­hækk­anir og ámátt­legri smjör­klípu um að þeir sem standi að...

Stærsti vinn­ing­ur­inn

Það datt ein­hver í lukku­pott­inn í gær og fékk 86 millj­ónir í Vík­inga­lottó­inu. Vonandi verður þetta við­kom­andi til gæfu og vart annað hægt annað en að óska við­kom­andi til ham­ingju. Samt er þetta ekki stærsti lukku­pott­ur­inn sem frést hefur af nýverið hér á landi. T.d. duttu vild­ar­við­skipta­vinir Arion-banka óvænt í lukku­pott­inn þegar þeir keyptu sér miða í einka­vina­væð­ing­ar­lottó­inu á sér­stöku...

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu­hug­mynd for­sæt­is­ráð­herra

For­sæt­is­ráð­herra hefur hent því út að hann myndi vilja sjá þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um verð­trygg­ing­una. Nú væri hægt svo sem að bæta ýmsu við það sem bent hefur verið á með eðli þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna og til­gang þeirra en það er ágætt að velta fyrir sér af hverju Sig­mundur Davíð er að viðra þetta. Fyrir það fyrsta þá er hann að tala um það...

Hefðu þeir fengið betri kjör?

Það var áhuga­verð frétt í Frétta­blað­inu í morgun. Þar var sagt frá því að stóru olíu­fé­lögin hefðu hundsað útboð Lands­sam­band smá­báta­sjó­manna sem hafið leitað eftir til­boði í öll við­skipti félags­manna sinna. Aðeins eitt þeirra sýndi áhuga og fékk við­skiptin. Fyrir utan að þetta minnti á hina gömlu(og nýju?) tíma olíu­sam­ráðs þá svar­aði N1 ekki spurn­ingum frétta­manns og Olís kom...

Feilskot Bjarna á for­set­ann

Það eru væg­ast sagt sér­stök við­brögð hjá Bjarna Ben að bregð­ast ókvæða við gagn­rýn­is­orðum for­set­ans sem var við mat­ar­dreif­ingu í Fjöl­skyldu­hjálp. For­set­inn lét í ljós þá skoðun við frétta­mann um að íslenskt sam­fé­lag hefði brugð­ist í ljósi þess að öryrkjar og aldr­aðir þyrftu að standa í bið­röðum eftir mat og öðrum nausð­ynjum fyrir jól. Maður getur svo sem skilið að...

Draumar valda­manna

For­sæt­is­ráð­herra end­ur­vekur húsa­meist­ara rík­is­ins upp. For­sæt­is­ráð­herra friðar hafn­ar­garða með flutn­ings­kostnað upp á hálfan millj­arð hið minnsta. For­sæt­is­ráð­herra fær alþingi til að hefj­ast handa við að byggja snobb­hús­næð­is­við­bót við alþingi upp á tvo og hálfan millj­arð. Maður finnur skyndi­lega til kunn­ug­legrar til­finn­ingu um hvernig for­sæt­is­ráð­herra lætur alla sína drauma sína í skipu­lags­málum með þegj­andi sam­þykki sam­herja. Til­finn­ingu sem kall­ast Deja vu....

Fréttir um fram­tíð og græðgi

Það er áhuga­vert að bera saman frétta­flutn­ing kvölds­ins hjá sjón­varps­stöðv­unum í kjöl­far samn­ings í lofts­lags­málum Hjá RÚV var talað við vís­inda­mann sem sagði örlítið frá áhrifum súrnum sjávar og skelfi­legar afleð­ingar þess á líf­ríkið sem næstu kyn­slóðir gætu þurft að upp­lifa ef ekk­ert er brugð­ist við. Í kjöl­far frétta var mál­inu fylgt á eftir með Kast­ljós­þætti með hópi sér­fræð­inga...

Mun rík­is­stjórnin virða samn­ing­inn?

Samkvæmt fréttum var und­ir­ritað sögu­legur samn­ingur í lofts­lags­málum í dag. Það er gott mál en kveikti strax upp spurn­ingu í koll­inum hjá manni. Hvað með íslensku rík­is­stjórn­ina? Ætlar hún sér að virða samn­ing­inn? Maður getur varla annað en spurt sig í ljósi þess að sam­kvæmt fjár­lögum þá eru skatt­greið­endur að fara að leggja 30 milljón krónur í und­ir­bún­ings­vinnu fyrir álver...

Mest lesið undanfarið ár