AK-72

AK-72

Agnar Kristján Þorsteinsson hefur bloggað árum saman um stjórnmál og önnur samfélagsmál undir bloggheitinu AK-72. Á milli þess gjóar hann augunum að kvikmyndum, sagnfræði og öðru því sem vekur áhuga hans hverju sinni.

Feigð­ar­för VG?

Ég er búinn að vera lengi með efa­semdir um að draumarík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins með Framsókn og VG verði að veru­leika. Ástæðan er fyrst og fremst að manni hefur þótt það svo hæpið að VG láti draga sig út í slíka feigð­ar­för út af gylli­boði um for­sæt­is­ráð­herra­stól og aug­ljósra and­stæðna í stjórn­mála­á­herslum. Það er þó ekki bara and­stæðan í stjórn­málum sem gerir...

Ofur­bónusar vs. banka­leynd

Fyrir rúmu ári síðan þá varð hér allt vit­laust vegna sví­virði­legra  ofur­bónusa til starfs­manna þrota­búa föllnu bank­anna. Þing sem þjóð varð alveg brjáluð og talað var um að grípa þyrfti til rót­tækra aðgerða vegna ákveð­ins atriðis. Lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki náðu ekki yfir þrotabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans þar sem þetta voru eign­ar­halds­fé­lög og því gátu þrota­búiin gengið mun lengra heldur...

„Getur ekki ein­hver þaggað niðri í Stund­inni?“

Það er alveg for­kast­an­legt þetta lög­bann á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar um við­skipti Bjarna Ben skömmu fyrir Hrun, lygar í tengslum við Vafn­ings­málið og Panama­skjölin, pen­inga­milli­færslur fjöl­skyldu hans og fleira sem hefur varpað meira ljósi á margt sem gerð­ist í aðdrag­anda Hrunsins. Þetta eru nefni­lega upp­lýs­ingar sem eiga erindi við almenn­ing. Það er líka for­kast­an­legt að gjald­þrota banki skuli geta komið í...

Reyk­sprengja Bjarna Ben

Eftir hátt í tveggja mán­aða þögn þá hefur Bjarni Ben loks­ins stigið fram og svarað varð­andi mál kyn­ferð­is­brota­manns­ins Róbert Downeys vegna þeirra spurn­inga sem kvikn­uðu í tengslum við þátt Bjarna Ben í afgreiðslu hinnar upp­reistu æru. Það er þó ekki með blaða­manna­fundi, við­tali við fjöl­miðla eða í gegnum sam­tal við fórn­ar­lömb Róbert Downeys heldur er það í gegnum Fés­bók­ina þar...

Hinn eitr­aði kaleikur Sigríðar Andersen

Það er væg­ast sagt eitr­aður kaleikur sem Sigríður Andersen hefur rétt alþingi með dóm­ara­skip­un­ar­til­lögu sinni. Ef til­lagan verður ekki sam­þykkt þá er það van­traust á ráð­herra af hálfu stjórn­ar­liða. Manni finnst því mjög lík­legt að stóri Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hóti á bak við tjöldin litla Sjálf­stæð­is­flokknum og Bjartri Framtíð með gadda­kylfu kosn­inga til að tryggja sam­þykki þeirra. Hvorugur af minni flokk­unum myndi...

Þögg­un­ar­til­raunir Sjálf­stæð­is­flokks­ins á einka­vina­væð­ingu bank­anna

Þær fregnir hafa borist að Sjálf­stæð­is­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd alþingis vilja koma í veg fyrir það að Ólafur Ólafsson svari spurn­ingum og tali upp­hátt í við­veru fjöl­miðla og beinnar útsend­ingar til almenn­ings. Þeir vilja að aðeins nefnd­ar­menn fái að heyra hvað hann hefur að segja og þarmeð við­halda hans eigin orðum í lít­illi, lok­aðri grúbbu þar sem hægt...

Er Óli Óla Keyser Söze Íslands?

Maður á ein­stak­lega erfitt með að kyngja þessum upp­hróp­unum um að stjórn­völd, aðilar innan S-hóps­ins og fjöl­miðlar líka hafi allir verið blekkt af Óla Ólasyni þegar Bún­að­ar­bank­inn var einka­vina­væddur. Manni finnst ein­hvern látið að því liggja um leið að allt ferlið hafi bara verið full­kom­lega í lagi fyrir utan þetta eina atriði og allir þáttak­endur aðrir hafi verið full­kom­lega vamm­laust...

Mán­að­ar­af­mæli rík­is­stjórn­ar­innar

Nú er víst rík­is­stjórnin orðin mán­að­ar­gömul. Á þessum mán­uði hefur hún áorkað það að byrja sem óvin­sælasta rík­is­stjórn Íslands­sög­unnar. Hún hefur áorkað það að á meðan einn ráð­herra tekur á móti flótta­mönnum þá sendir annar aðra flótta­menn og hæl­is­leit­endur úr landi. Um leið hefur hún sýnt það að hún starfar ekki heil saman. Hún hefur komið okkur í skiln­ing um...

Mest lesið undanfarið ár