
Baráttudaga kvenna ekki getið í Almanaki HÍ
Enginn af baráttudögum kvenna er tiltekinn í Almanaki fyrir Ísland 2019, sem Háskóli Íslands gefur út. Þar má meðal annars finna sjómannadaginn, Dag íslenskrar náttúru og Valentínusardaginn, að ónefndum tugum messudaga. Ábyrgðarmaður útgáfunnar sér ekkert athugavert við það að dagana vanti, meðan formaður Kvenréttindafélags Íslands er hissa á Háskólanum.



























