PistillIllugi JökulssonNasistar og íslamistar eru sama fyrirbærið Illugi Jökulsson telur að bæði áhersla á hryðjuverkaógn og aukin þjóðernishyggja séu ekki annað en tilraunir til að þyrla ryki yfir hin raunverulegu vandamál heimsins - og leiðirnar til að leysa þau.
FréttirStanda í vegi fyrir gistiheimili á meðan bæjarfulltrúi byggir hótel Í sveitarfélaginu Garði stendur stórt og mikið en tómt hús sem áður hýsti hjúkrunarheimilið Garðvang. Áhugi er fyrir því að breyta húsinu í gistiheimili en ákvæði í deiliskipulagi stendur í veginum. Á meðan byggir einn af bæjarfulltrúum í meirihluta bæjarstjórnar hótel úti við Garðskaga. Húsið er í eigu fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum og deila þau nú um framtíð þess.
FréttirPanamaskjölinPanama-skjölin: „Þessi reynsla varð mér persónulega mjög erfið“ Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks, átti fyrirtæki í skattskjólinu Tortólu sem fékk lán til fjárfestinga á árunum fyrir hrun. Hann segir að félagið hafi verið stofnað að undirlagi Landsbankans í Lúxemborg. Frumtak sér um rekstur tveggja fjárfestingarsjóða þar sem lífeyrissjóðirnir eru stórir hluthafar.
MenningÞrívíddarbíó dýrara fyrir þá sem nota gleraugu Það hefur færst í vöxt í Hollywood að taka upp og sýna kvikmyndir í þrívídd en því fylgir aukinn kostnaður fyrir þá bíógesti sem sækja slíkar sýningar. Til þess að njóta kvikmyndar í þrívídd þarf sérstök þrívíddargleraugu sem seld eru sér hér á landi. Fyrir þá sem nota gleraugu að staðaldri getur reynst ansi dýrt að sækja slíkar sýningar.
ÚttektUmdeild framtíðarsýn veldur titringi á stjórnarheimilinu: Hvað felst í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar? Stjórnarliðar vilja að menntun og heilbrigðisþjónustu verði áfram skorinn þröngur stakkur næstu fimm árin og að fjárfestingarstig hins opinbera verði áfram jafn lágt og á tímum kreppunnar. Ekki var brugðist við viðvörunarorðum Seðlabankans, ASÍ og rektora allra háskóla á Íslandi.
ÚttektEinkarekstur í heilbrigðiskerfinuEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu: Einn fimmti hluti greiðslna frá ríkinu tekinn út sem arður Einkarekin myndgreiningarfyrirtæki á sviði læknisfræði eru meðal arðbærustu fyrirtækjanna í heibrigðisgeiranum. Tvö þeirra skila drjúgum hagnaði og geta greitt út tugmilljóna króna arð til hluthafa sinna á hverju ári. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra vill ekki hrófla við möguleikum þessara fyrirtækja til að greiða út arð til hluthafa en hann ætlar hins vegar að banna arðgreiðslur út úr einkareknum heilsugæslustöðvum. Ekkert eftirlit er með arðgreiðslum út úr einkareknum heilbrigðisfyrirtækjum á Íslandi.
PistillÓlafur Páll JónssonSkjól fyrir eignir Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki, lýsir gönguferð með manni sem hafði fengið viðskiptahugmynd sem hæfir þörfum ákveðins hóps og fellur vel að frelsi og persónuvernd.
FlækjusaganIllugi JökulssonÆ, ertu ómissandi? Illugi Jökulsson finnur tvo leiðtoga úr sögunni sem báðir voru „ómissandi“ hvor á sinn hátt. Konstantínus mikla, keisara í Rómaveldi, og António Salazar, forsætisráðherra Portúgals.
FréttirPanamaskjölinEiga fé í skattaskjólum en segjast eignalaus á Íslandi Fyrrverandi eigendur og stjórnendur fjárfestingarfélagsins Sunds eru prókúruhafar í þremur skattaskjólsfélögum á Seychelles-eyjum. Þeir skilja eftir sig skuldaslóð á Íslandi en nota félögin í skattaskjólinu til að halda utan um eignir á Íslandi. Skiptastjóri Sunds segir að erfiðlega hafi gengið að innheimta kröfur sem fyrri eigendur Sunds voru dæmdir til að greiða þrotabúinu.
ListiForsetakosningar 2016Ritstjórinn Davíð: Tíu skringilegustu ummælin Morgunblaðið hefur hamast á minnihlutahópum, kallað áhrifakonu „gluggaskraut“ og erlendan þjóðhöfðingja „múlatta“ síðan Davíð Oddsson settist í ritstjórastól. 10 mín. lestur
ViðtalGrátur sonarins stöðvaði sjálfsvígið Tíu dögum fyrir síðustu jól tók Kristian Guttesen ákvörðun um að deyja. Hann var kominn á endastöð. Hann sendi eiginkonu sinni skilaboð og sagði henni frá ætlunarverki sínu, kynnti sér hvernig best væri að hnýta hengingarhnút og var að leita sér að krók þegar rónni var raskað. Rúmlega ársgamall sonur hans vaknaði af síðdegislúrnum og skyndilega breyttust aðstæður.
Viðtal„Ég er hvort sem er að deyja“ Eysteinn Skarphéðinsson er með 4. stigs krabbamein í vélinda og eru reykingar og óhófleg áfengisneysla helstu áhættuþættir. Meðalaldur þeirra sem greinast er um 72 ár. Eysteinn er 41 árs, hefur reykt frá 14 ára aldri og hefur verið alkóhólisti í 24 ár auk þess að vera í neyslu annarra vímuefna. „Það er þannig með alkóhólisma; það er alveg sama hvert maður fer - hann kemur alltaf með. Hann eyðileggur, eyðileggur og eyðileggur,“ segir hann. 24 mín. lestur
ÚttektFátæku börnin Sautján ára stúlka sem býr við sára fátækt segist finna fyrir fordómum frá jafnöldrum vegna aðstæðna hennar. Hún á aðeins eitt par af skóm og götótt föt. Samkvæmt skýrslu UNICEF má gera ráð fyrir að 6.100 börn líði skort hvað varðar fæði, klæði og húsnæði hér á landi. Þar af líða tæplega 1.600 börn verulegan skort. Barnafátækt stafar af því að foreldrar hafa ekki framfærslu sem dugar til að mæta grunnþörfum barna sinna – og þar standa lífeyrisþegar verst. Erfiður húsnæðismarkaður setur einnig stórt strik í reikninginn en meginþorri örorkulífeyrisþega býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað og flestir eru á leigumarkaði. Stundin ræddi við einstæðar mæður á örorkulífeyri um baráttuna við að tryggja börnum þeirra áhyggjulausa æsku. 13 mín. lestur
MenningDraumnum um listasafn alþýðunnar lokið? Nýverið tilkynnti Alþýðusamband Íslands að til stæði að selja Freyjugötu 41 og hætta þar með rekstri á listasafni ASÍ í núverandi mynd. Mikil reiði er meðal listamanna yfir þeim tíðindum, en framkvæmdastjóri ASÍ segir að listaverkasafn Ragnars í Smára verði enn aðgengilegt almenningi. Aðalheiður Magnúsdóttir segist skilja vel reiði fólks en lofar að húsið verði góður staður fyrir listsköpun.
FréttirForsetakosningar 2016Andri Snær: „Er ekki einu sinni almennilegur umhverfisverndarsinni“ Andri Snær Magnason rithöfundur hefur allan sinn feril verið óhræddur við að feta ótroðnar slóðir. Hann er eini íslenski rithöfundurinn sem hefur hlotið bókmenntarverðlaun fyrir skáldsögu, barnabók og fræðibók. Hann hefur komið að nýsköpun, kvikmyndagerð og nú liggur slóðin að Bessastöðum. 16 mín. lestur
FréttirGreiddu 54 þúsund fyrir nauðsynlega bráðaþjónustu Malsor Tafa þurfti að greiða 54 þúsund krónur fyrir læknisþjónustu þegar átta mánaða gamall sonur hans brenndist illa á fæti. Sonur hans fæddist á Íslandi en fjölskyldan bíður nú eftir svari Útlendingastofnunar um dvalarleyfi. Þeim hefur verið gert að yfirgefa landið í lok mánaðar.
ÚttektHæg heimatök: Um aðgengi fjölskyldu Bjarna Benediktssonar að fjármunum ríkisins Fyrirtæki tengd fjölskyldu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra hafa frá því Bjarni hóf afskipti af stjórnmálum verið stórtæk í samningum og viðskiptum við ríkið. Hafa þau gert einstaka ívilnanasamninga við yfirvöld, keypt eignarhlut fyrirtækja í eigu ríkisins án formlegra söluferla og notið góðs af lagasetningum Bjarna. Eyjan fjallaði um viðskipti ráðherrans í fyrra.
ÚttektForsetakosningar 2016Sigurplan Davíðs Oddssonar Stundin kynnti sér hernaðaráætlun umdeildasta stjórnmálamanns síðari ára, sem vinnur að endurkomu á valdastól. Kosningastjórar hans úr röðum Sjálfstæðisflokksins og útgáfufélagi Morgunblaðsins hyggjast virkja hóp til að breyta viðhorfi til hans á samfélagsmiðlum. Davíð Oddsson hefur mótað goðsögn um sjálfan sig sem hann kynnir markvisst. Hann ætlar að verða mótvægið við „sálrænum vanda“ þjóðarinnar. Goðsögnin sem hann kynnir þjóðinni samræmist hins vegar ekki sögunni. 26 mín. lestur
PistillJón ÓlafssonGetur lýðræði farið út í vitleysu? „Það er grundvallarmunur á því annars vegar að berjast fyrir hugsjónum og sjónarmiðum, hins vegar að tryggja völd sín með þeim aðferðum sem hægt er að láta virka hverju sinni,“ skrifar Jón Ólafsson prófessor.
LeiðariIngibjörg Dögg KjartansdóttirÞangað sem Davíð leiðir okkur Til að sannfæra okkur um að kjósa hann notar Davíð áróðurstækni þar sem alið er á ótta, búin er til goðsögn af honum sem sterkum leiðtoga og grafið er undan öðrum frambjóðendum. Til þess notar hann meðal annars miðilinn sem hann ritstýrir.
FréttirEgg villtra fugla Óskar Ericsson sýnir hvernig best er að matreiða egg villtra fugla, sem hann segir þau bragðbestu sem hægt er að fá.
FréttirForsetakosningar í BNA 2016Forsetafrúin og maðurinn með litlu hendurnar Þau sögulegu umskipti gætu orðið í haust að Bandaríkin velji sinn fyrsta kvenforseta, reynda pólitíska kempu sem hefur í áratugi barist fyrir aukinni heilbrigðisþjónustu, verið utanríkisráðherra, öldungardeildarþingmaður og forsetafrú. Engu að síður sýna nýjustu skoðanakannanir að Hillary Clinton gæti tapað fyrir óreyndri raunveruleikasjónvarpsstjörnu með mýmarga galla.
MenningHeltekinn af Gonzo-draugnum Jóhannes Ólafsson þýddi bókina Fear and Loathing in Las Vegas eftir Hunter Thompson fyrir meistaraverkefni sitt í ritlist við Háskóla Íslands.
ViðtalGott að geta rætt um dauðann Séra Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, veitir þjónustu þeim sem greinast með lífshættulega sjúkdóma og hefur verið viðstaddur mörg andlátin. Hann segir að dauðvona fólk takist á við erfiða, tilfinningalega líðan - fólk getur verið ósátt, það getur fundið fyrir reiði og ótta og verið að takast á við ákveðin uppgjör. „Því finnst eins og lífið sé að hlaupa frá því og að það hafi ekki náð að gera það sem það ætlaði sér í lífinu. Allt þetta kemur inn á borð hjá mér. Það sama er að segja um trúarleg spursmál - hvernig er dauðinn, hvert viðkomandi fer þegar hann deyr og sumir velta fyrir sér hvort von sé um að annað líf taki við þegar þeir kveðja.“
Listi7 daga áætlun til að efla hamingju „Hamingjan hún var best af öllu sköpunarverkinu“ sungu Ðe lónlí blú bojs í gamla daga og heimsbyggðin öll virðist sammála þessari fullyrðingu ef marka má allar þær bækur, vefsíður, blogg og Facebook-statusa sem tyggja það ofan í okkur hvað sé nú best að gera til að krækja í anga af þessari margprísuðu hamingju. Hvað hamingjan nákvæmlega felur í sér eða...
FréttirPáfi fordæmir brot gegn verkafólki: „Blóðsugur!“ Francis páfi var í nýlegri guðsþjónustu sinni harðorður í garð þeirra sem nýta sér fátækt og neyð verkafólks. Nýtt átak ASÍ heggur í sama knérunn.
PistillJóhannes BenediktssonBrellu- og klækjabragðaskólinn Jóhannes Benediktsson stingur upp á því að umræðunni ljúki um leið og einhver grípur til samanburðarins við Icesave. Sá telst hafa tapað rökræðunni enda augljóslega kominn í þrot. Hér útskýrir hann hvers vegna og fer yfir áróðursbrögð stjórnmálamanna.
PistillElva Björk Ágústsdóttir og Sólrún Ósk LárusdóttirKynlíf og líkamsmyndin Líkamsmynd hefur áhrif á upplifun kvenna af kynlífi. Sálfræðimenntaðir líkamsvirðingarsinnar útskýra hvernig.
PistillÞórdís Elva ÞorvaldsdóttirOpið bréf til Monicu Lewinsky „Orðið „drusluskömmun“ var ekki til í orðaforðanum. Þess vegna gat ég ekki skilgreint það sem dundi yfir þig árið 1998, þótt ég hafi herpst saman af ónotum yfir vægðarleysinu sem þér var sýnt,“ skrifar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir.
PistillSigurbjörg SigurgeirsdóttirEinkavæðing heitir það heillin „Starfsemin á Landspítala háskólasjúkrahúsi mun fara minnkandi þar sem undirliggjandi stefna er að koma sem mestu af læknaþjónustunni út í einkarekstur,“ skrifar Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.
Áskrift hefur áhrif Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku. Ég vil fá áskrift Nei, takk Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.