
Leigufélagið Alma lánaði Mata-systkinunum 7 milljarða til að kaupa sig
Nýir eigendur Ölmu leigufélags áttu í stórfelldum innbyrðis viðskiptum með fyrirtæki sín á sama tíma og þeir keyptu fyrirtækið í fyrra. Alma fjármagnaði kaup Mata-systkinanna með láni og systkinin seldu Ölmu leigufélag á rúma 11 milljarða með láni. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hækkanir Ölmu á leiguverði séu ógeðfelldar en hann hefur reynt að fá fyrirtækið til að sleppa því að hækka leiguna.

























