
Ætti fyrst og fremst að hlusta á hjartað
Felix Bergsson, sjónvarpsmaður, útvarpsmaður, leikari og tónlistarmaður, segir að hamingjan felist helst í því að manni líði vel. „Ég á miklar hamingjustundir með börnunum mínum og tengdabörnum þegar þau koma til okkar, sitja með okkur, ræða málin og borða góðan mat; þá fyllist ég mikilli hamingju.“ Þá gefur hann ráð varðandi það hvernig eigi að viðhalda hamingjunni.









