
Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans
Kona sem missti heimili sitt vegna eldsvoðans á Sævarhöfða í vikunni segir Reykjavíkurborg bera mikla ábyrgð. Íbúum hjólhýsabyggðarinnar hefði verið lofað að þeir fengju almennilegt svæði en ekki hefði verið staðið við það. „Maður bara veltir fyrir sér hvað þurfi eiginlega að gerast til að menn vakni,” segir varaborgarfulltrúi Flokks fólksins.

























