
Litið fram hjá tilfinningalegum tengslum við uppbyggingu í miðborginni
Breytt ásýnd miðborgarinnar blasir nú við í nágrenni við Austurvöll. Innan um rótgrónar og sögufrægar byggingar, líkt og Alþingi og Dómkirkjuna, blasa við nýbyggingar og uppgerð hús, svo sem skrifstofur þingflokka og hótel. Doktor í umhverfissálfræði segir skeytingarleysis gagnvart sögu svæðisins gæta í framkvæmdum í miðborginni.




























