
Vel lifaður útikamar fær nýjan tilgang
Þríhyrndur útikamar á Lónsöræfum, sem hafði misst vægi sitt með tilkomu vatnsklósetta, skipti á nokkrum dögum um hlutverk og varð að Gallerí Múlaskít. Fyrsta sýningin var á vegum hollenskrar konu sem málaði vatnslitamyndir af mögnuðu umhverfinu. Myndirnar ruku út samdægurs þar til engin var eftir.
































