
Stjórnarmaður í Arnarlaxi á fyrirtæki sem selur dýrafóður úr dauðfiski
Kjartan Ólafsson ,fyrrverandi stjórnarformaður Arnarlax, er hluthafi í fyrirtækinu Arctic Protein sem býr til dýrafóður úr eldislöxum úr íslensku sjókvíaeldi sem ekki er hægt að nota til manneldis. Bæði er um að ræða dauðfisk og eins fisk sem þarf að farga.





























