
Foreldrahús leggur brátt niður starfsemi vegna fjárskorts
Foreldrahús mun brátt leggja niður starfsemi sína vegna fjárskorts. Um er að ræða eina úrræðið sem foreldrum barna og ungmenna í vímuefnavanda stendur til boða. Efnt hefur verið til undirskriftasöfnunar til þess að skora á stjórnvöld til að koma í veg fyrir að félagið verði lagt niður.










































