
210 tilkynningar um að fatlað fólk hafi verið beitt nauðung
Sérfræðiteymi á vegum félags- og vinnumálaráðuneytisins bárust 210 tilkynningar um beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk á síðasta ári. Þetta er aukning um 169% milli áranna 2022 og 2023. Óvenju margar tilkynningar bárust vegna fáeinna einstaklinga.





























