
Ætlar ekki í kónga- eða drottningaleik
Baldur Þórhallsson ætlar ekki að fara í kónga- eða drottningaleik á Bessastöðum, verði hann kjörinn forseti. Það yrðu heimstíðindi nái hann kjöri og verði þar með fyrsti þjóðkjörni opinberlega samkynhneigði forsetinn í heiminum. En það er ekki eingöngu þess vegna sem Baldur býður sig fram.

























