
Ríkið ætlar að útvista liðskiptaaðgerðum til einkafyrirtækja í allt að fimm ár
Sjúkratryggingar Íslands ætla að útvista liðskiptaaðgerðum, aðgerðum vegna endómetríósu og brjósklosi með samningum til allt að fimm ára. Samningarnir gagnast einkarekna heilbrigðisfyrirtækinu Klíníkinni sérstaklega vel þar sem það framkvæmir allar þessar aðgerðir. Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri lýsir áhyggjum af aukinni útvistun skurðagerða til einkafyrirtækja.








































