
Umferðarhnúturinn á Sæbraut skynjurum að kenna
Gríðarleg umferð hefur verið á Sæbrautinni í Reykjavík síðastliðnar vikur. Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir þetta vera vegna ótengdra skynjara á gatnamótum við brautina. Tekið hafi tíma að ráða bót á því vegna fáliðunar og veikinda. Framkvæmdastjóri Strætó segir ferðir strætisvagna sem leið áttu eftir Sæbrautinni hafa verið allt að rúmum klukkutíma á eftir áætlun.


































