
„Við fórum úr einu helvíti í annað“
Venesúelskir íbúar JL-hússins þurfa að flytja úr því á næstunni eftir að lögbann var sett á búsetu fólks í fasteigninni. Hópur manna á aldrinum 22 til 72 ára eru vonsviknir með íslensk stjórnvöld út af breyttri stefnu í garð íbúa Venesúela. Þeir segja að ástandið í landinu sé verra en ekki betra en það hefur verið.





















































