
Eðlismunur á atburðum í Grindavík og fyrra skjálftatjóni
Að hús séu byggð á sprungum hérlendis er ekkert einsdæmi, segir prófessor í byggingarverkfræði, og bendir á að í gólfinu á bókasafninu í Hveragerði sé hægt að virða fyrir sér sprungu sem liggur þvert í gegnum húsið. Það er hins vegar einsdæmi að sprunga opnist undir mörgum húsum, eins og gerst hefur í Grindavík. Brunabótamat eigna í Grindavík er hærra en fasteignamat.














































