Enginn bandarískur geimfari verið lengur frá jörðu

Geim­far­inn Peggy Whitson er nú í sínum þriðja leið­angri í geimnum og hefur eng­inn geim­fari hjá NASA dvalið þar lengur en hún.

Whitson, sem er 57 ára, er elsta kona sem farið hefur út í geim.
Whitson, sem er 57 ára, er elsta kona sem farið hefur út í geim. Mynd: EPA

Forseti Banda­ríkj­ana, Donald J. Trump, átti sím­tal frá Hvíta hús­inu út í him­in­geim­inn við geim­far­ann Peggy Whitson á dög­unum. Tilefni sím­tals­ins var að óska Whitson til ham­ingju með að hún hafi slegið met Jeff Williams um fjölda daga í geimnum. 

Enginn banda­rískur geim­fari hefur dvalið jafn­marga daga og hún í geimnum, þegar metið var slegið þann 24. apríl síð­ast­lið­inn hafði hún dvalið þar sam­tals í 534 daga.

Samkvæmt áætl­unum banda­rísku geim­ferða­stofn­un­ar­innar, NASA, mun Whitson snúa aftur til jarðar í sept­em­ber 2017 og þá mun hún hafa dvalið rúm­lega 650 daga frá jörðu. Ef þær áætl­anir stand­ast verður hún í sjö­unda sæti þeirra geim­fara sem hafa dvalið lengst í geimnum á heims­vísu en metið á rúss­neski geim­far­inn Gennady Padalka; hann hefur nú þegar dvalið 879 daga sam­tals frá jörðu.

Stefnan tekin á Mars

Whitson sagði for­set­anum að þó það væri vissu­lega gaman að slá þetta met þá væri afrekið ekki aðeins hennar heldur einnig sam­starfs­manna sinna hjá NASA, án þeirra hefði hún aldrei getað yfir­gefið jörð­ina.

Hún sagði for­set­anum að þær rann­sóknir sem fram­kvæmdar eru í alþjóð­legu geim­stöð­inni séu mik­il­vægar fyrir tækni­þróun í geim­ferðum. Áður en hægt er að leggja í langar geim­ferðir, til að mynda til Mars, þurfi að finna lausnir á ýmsum vanda­málum.

Hún benti for­set­anum á að í geim­stöð­inni sé allt vatn end­ur­unnið og þvag geim­far­ana er meðal ann­ars hreinsað og end­ur­nýtt sem drykkj­ar­vatn. Hún full­viss­aði for­set­ann um að drykkj­ar­vatnið væri alls ekki eins slæmt og það hljóm­aði, Trump svar­aði því að hann væri feg­inn að það væri hún en ekki hann sem sæi um þetta.

Elst, lengst og oftast

Whitson sló fleiri met á á árinu. Þegar hún lagði af stað í yfir­stand­andi geim­för varð hún elsta konan sem skotið hefur verið út í geim, en hún er 57 ára gömul.

Hún varð einnig elsta konan sem verið hefur í geimnum utan geim­fars, þegar hún ásamt öðrum geim­fara sinnti við­haldi á alþjóð­legu geim­stöð­inni. Þetta var jafn­framt átt­unda skiptið sem Whitson hefur verið utan geim­fars í geimnum og sló þar með met Sunita Williams um að vera sú kona sem oft­ast hefur verið utan geim­fars.

Í þau átta skipti sem hún hefur verið utan geim­fars í geim­bún­ingi er sam­an­lagður tími við þær aðstæður 53 klukku­stundir og 22 mín­útur og er það lengsti tími sem nokkur kona hefur afrekað og fimmti lengsti tími allra geim­fara frá upp­hafi geim­rann­sókna.

Whitson varð einnig fyrsta konan til að stýra alþjóð­legu geim­stöð­inni, og varð sú fyrsta til að gera það í tvígang fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geimvísindi

Mest lesið undanfarið ár