Erfitt fyrir Íslendinga að hugsa langt fram í tímann og byggja innviði

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, segir að stundum þurfi ein­fald­lega að taka ákvarð­anir og gera það sem er hag­kvæm­ast og hent­ug­ast á hverjum tíma. Það virð­ist erfitt fyrir Íslend­inga og við þurfum að taka okkur á í þeim efnum.

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, segir Íslend­ingar eigi erfitt með að hugsa mjög langt fram í tím­ann. „Við erum háð nátt­úru­öfl­unum, erum alltaf að kljást við hríð­ina og svo kemur dúna­logn. Við erum mögu­lega þannig þenkj­andi. En það að byggja inn­viði, það er alveg rosa­lega erfitt fyrir okkur. Og það má spyrja af hverju? Erum við hrædd við þessar áskor­anir, þetta rifr­ildi sem felst í þessu? Stundum þarf bara að taka ákvarð­anir og gera það sem er hag­kvæm­ast og hent­ug­ast á þeim tíma sem sú ákvörðun er tekin. Þetta er erfitt fyrir okkur og við verðum að fara að taka okkur aðeins á.“

[links]Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Rögnu í þætt­inum 21 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dag. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að ofan.

Aðspurð um af hverju þetta sé segir Ragna að við lifum í þjóð­fé­lagi þar sem margar skoð­anir séu uppi og fólk hafi fjöl­mörg tæki­færi til að koma á fram­færi sínum skoð­unum

[adspot]„Stjórn­mála­menn virð­ast vera valtir í sessi, það eru kosn­ingar hérna í raun og veru of oft. Það getur vel verið að það sé erf­ið­ara fyrir þá að stiga fram. Hver fær sviðs­ljósið um hvaða mál­efni? Það er miklu ein­fald­ara að tala um ein­falda hluti[...]heldur að fara að útskýra eitt­hvað í löngu máli eitt­hvað flókið. Það er mikil áskorun. Ef maður er óánægður í vinn­unni er miklu ein­fald­ara að tala um að mat­ur­inn sé vondur en að verk­efnin séu leið­in­leg.“

Í þætt­inum fer Ragna um víðan völl og ræðir meðal ann­ars inn­leið­ingu hins umdeilda þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins, mögu­leik­ann á því að sæstrengur verði lagður milli Íslands og Evrópu og áhrif vand­ræða United Silicon á sölu Lands­virkj­unar á raf­magni. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár