Segir rammaáætlun þurfa að meta efnahagslega þætti

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, seg­ist ekki vita almenni­lega í hvaða stöðu ramma­á­ætlun sé. Hún virð­ist láta meta alla aðra þætti en efna­hags­lega þegar fundið er út úr því hvaða land­svæði eigi að vernda gagn­vart orku­nýt­ingu.

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, segir að vinna ramma­á­ætl­unar meti nán­ast alla aðra þætti en efna­hags­lega þegar ákveðið er hvar eigi að virkja og hvar ekki. Verk­efna­stjórnir og fag­hópar séu skip­aðir til að meta nátt­úru- og menn­ing­ar­lega þætti og áhrif á aðra nýt­ingu en orku­vinnslu á land­svæðum, til dæmis land­búnað og ferða­mennsku. Félags­leg áhrif séu líka metin. „Ég veit ekki alveg í hvaða stöðu Ramma­á­ætlun er. Lögin um ramma­á­ætlun heita lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun. Ramma­á­ætlun gengur út á það að finna út úr því hvaða land­svæði eigi að vernda gagn­vart orku­nýt­ingu[...]Það er algjör­lega hróp­andi í þessu, og engin plön að því er virð­ist, þó það geti verið að þau hafi bara ekki komið fram, að meta efna­hags­lega þætti.“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Rögnu í þætt­inum 21 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut sem frum­sýndur var í gær­kvöldi. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að ofan.

Í þætt­inum fer Ragna um víðan völl og ræðir meðal ann­ars inn­leið­ingu hins umdeilda þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins, mögu­leik­ann á því að sæstrengur verði lagður milli Íslands og Evrópu og áhrif vand­ræða United Silicon á sölu Lands­virkj­unar á raf­magni.

Ragna spyr í við­tal­inu til hvers orku­nýt­ing sé ef ekki í efna­hags­legum til­gangi? Þess vegna sé sér­kenni­legt að efna­hags­legir þættir séu ekki metnir inn í heild­ar­mynd­ina. Þó sé vert að taka fram að stjórn­völd séu að vinna að gerð orku­stefnu fyrir Ísland og að skip­aður hafi verið starfs­hópur til að móta hana. „Orka er nýtt í ákveðnum til­gangi, efna­hags­legum til­gangi. Ef hinir efna­hags­legu þættir eru ekki metnir, hvernig eigum við þá að vita, sam­fé­lagið að vita hvað á að nýta af orku­kostum og hvað á að vernda.“

Hægt er að sjá síð­asta þátt 21 á Hring­braut hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár