Aðili

Samherji

Fréttir

Þor­steinn Már keypti virkj­un­ar­kost við Lang­jökul

Þor­steinn Már Bald­vins­son útgerð­ar­maður keypti sig inn Haga­vatns­virkj­unar sem reynt hefur að fá leyfi til að byggja um nokk­urra ára skeið. Um er að ræða þriðja virkj­un­ar­kost­inn sem Þor­steinn Már fjár­festir í. Eyþór Arnalds er einn aðal­hvata­maður Haga­vatns­virkj­unar og er einn af eig­endum félags­ins. Þor­steinn seg­ist nú hafa selt hlut­inn í virkj­un­ar­kost­inum.
FréttirPanamaskjölin

Sjó­menn­irnir sleppa en eig­endur Sjóla­skipa rann­sak­aðir fyrir skatta­laga­brot í gegnum Tortólu

Sjómenn sem unnu hjá Afr­íku­út­gerð og Sjóla­skipa sleppa við ákæru fyrir skatta­laga­brot. Sögðu útgerð­irnar hafa ráð­lagt þeim að flytja lög­heim­ili sítt til Márit­aníu og héldu að þær greiddu af þeim skatta. Mál sjó­mann­anna meðal 62 mála sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur lagt niður. Eigendur Sjóla­skipa til rann­sóknar fyrir að nota pen­inga frá Tortólu til að greiða kredikorta­reikn­inga.
Fréttir

Kvóta­kerfið: Félag Þor­steins Más græddi sex millj­arða í fyrra og á 35 millj­arða eignir

Þor­steinn Már Bald­vins­son á eignir upp á 35 millj­arða króna í eign­ar­halds­fé­lagi sínu. Arður hefur ekki verið greiddur úr félag­inu á liðnum árum en félagið kaupir hluta­bréf í sjálfu sér af Þor­steini Má og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Helgu S. Guð­munds­dóttur. Staða félags­ins sýnir hversu efn­aðir sumir útgerð­ar­menn hafa orðið í núver­andi fyr­ir­komu­lagi á kvóta­kerf­inu.
Fréttir

Kerfið sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill ekki breyta: Ávinn­ingur stærstu útgerð­anna nærri tíu sinnum hærri en veiði­gjöldin

Stærstu útgerðir lands­ins hafa á liðnum árum greitt út mik­inn arð og bætt eig­in­fjár­stöðu sína til muna. Veiði­gjöldin sem útgerðin greiðir í dag eru ein­ungis um 1/4 hluti þeirra veiði­gjalda sem rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna vildi inn­leiða. Nefnd um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi hætti nýlega störfum vegna and­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um breyt­ingar á gjald­heimt­unni.
FréttirPanamaskjölin

Panama-skjölin: Einn rík­asti útgerð­ar­maður lands­ins með hlut í félagi á Tortólu

Útgerð­ar­stjóri og næst­stærsti hlut­hafi Samherja, Kristján Vil­helms­son, var skráður fyrir hlut í fyr­ir­tæk­inu í Hornblow Continental Corp. Kristján og kona hans eiga eignir upp á um sjö millj­arða króna. Annar hlut­hafi í Hornblow, Hörður Jónsson, segir að félagið hljóti að hafa verið stofnað í gegnum Lands­banka Íslands.
Fréttir

Þetta er fólkið sem fær hluta af millj­arðaarð­inum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.
FréttirSamherjamálið

Sam­herj­a­málið snýst meðal ann­ars um 9 millj­arða við­skipti pólsks fyr­ir­tækis

Þor­steinn Már Bald­vins­son úti­lokar ekki mis­tök í gjald­eyr­is­við­skiptum Samherja en segir engin vilj­andi brot hafa verið framin. Seðla­banki Íslands skoðar nú mögu­leik­ann á því að kæra málið til Rík­is­sak­sókn­ara ellegar að leggja sekt á Samherja eftir að sér­stakur sak­sókn­ari vís­aði frá mál­inu gegn fyr­ir­tæk­inu.

Mest lesið undanfarið ár