Fréttamál

Róbert Wessman

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Fréttir

Félag Róberts segir ,,ekk­ert laun­ung­ar­mál” á hverju 11 millj­arða arð­greiðsla byggir en vill samt ekki segja frá því

Tals­maður fjár­fest­ing­ar­fé­lags Róberts Wessman segir enga leynd hvíla yfir því af hverju félagið gat greitt út him­in­háan arð. Félagið vill samt ekki svara spurn­ingum um rætur arð­greiðsl­unnar eða af hverju sænska félagið sem greiddi arð­inn í fyrra afskrif­aði 5 millj­arða króna kröfur á hendur ótil­greindum aðilum árið áður.
Fréttir

Alvogen­fé­lag Róberts greiddi 11,3 millj­arða króna arð til félags í eigu sjóðs í skatta­skjól­inu Jersey

Sænskt eign­ar­halds­fé­lag sem heldur utan um eign­ar­hluti Róberts Wessman fjár­festis í Alvogen og Alvotech hefur greitt út veg­legan arð til hans þrátt fyrir botn­lausan tap­rekstur félag­anna. Skuldir við óltil­greindra aðila upp á millj­arða króna hafa einnig verið afskrif­aðar í félag­inu. Róbert stýrir félögum sem hafa fengið leyfi til að byggja tvær lyfja­verk­smiðjur í Vatns­mýr­inni og hefur sótt fé til íslenskra fjár­festa, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðs.
Fréttir

Selur Alvogen kampa­vín sem heitir Wessman One: „Líta í raun á Róbert sem eins­konar vöru­merki“

Tals­maður Róberts Wessman segir að arms­lengd­ar­sjón­ar­miða sé alltaf gætt í við­skiptum hans við Alvogen og Alvotech. Félög Róberts leigja Alvotech íbúðir fyrir starfs­menn, eiga verk­smiðju Alvotech og selja frönsk vín sem Róbert fram­leiðir til þeirra. Alvogen fram­kvæmdi rann­sókn á starfs­háttum Róberts sem for­stjóra þar sem mögu­legir hags­muna­á­rekstrar voru meðal ann­ars kann­aðir.
Fréttir

SMS Róberts til fyrr­ver­andi sam­starfs­manna sinna: „Þú ert dauður ég lofa“

Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen, sendi rúm­lega 30 hat­urs­full og ógn­andi SMS-skila­boð til fyrr­ver­andi sam­starfs­manna sinna há Actavis. Ástæðan var að annar þeirra hafði borið vitni í skaða­bóta­máli Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar gegn honum árið 2016. Alvogen lét skoða málið en segir engin gögn hafa bent til þess að „eitt­hvað væri athuga­vert við stjórn­un­ar­hætti Róberts.“ Stundin birtir gögnin.

Mest lesið undanfarið ár