Flokkur

Pistlar

Pistillkosningar2016

Dagur Hjartarson

Leið­togaum­ræður: Með­al­fram­bjóð­andi og Megavika

Stjórn­andi: Verið vel­komin í þennan umræðu­þátt með leið­togum stjórn­mála­flokk­anna. Hér á eftir fáum við svo leið­toga grín­flokk­anna. Og talandi um grín, byrjum á að skoða tölur úr nýrri skoð­ana­könnun. [Skoð­ana­könnun birt: Sjálf­stæð­is­flokkur 90%. Píratar 30%. Vinstri Grænir 20%. Hinir: 7.61%] Stjórn­andi: Já, svona eru töl­urnar, en við skulum ekk­ert tala um þær, ég veit ekki einu sinni af hverju við...
Pistill

Páll Ásgeir Ásgeirsson

Gall­blaðran í Vatns­mýri

Kalda stríðið var dásam­legur tími. Þá var ekk­ert grátt svæði til heldur aðeins svart eða hvítt. Heim­ur­inn skipt­ist í þá sem voru með mér og þá sem voru á móti mér. Plús eða mínus, líf eða dauði, af eða á. Hin spillta borg gegn hinni hreinu sveit. Hinn frjálsi heimur gegn alheims­sam­særi komm­ún­ista. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Varðberg og Hvöt gegn Alþýðu­banda­lag­inu, MíR...
Pistill

Auður Jónsdóttir

Að móðga biskup

Eitt sinn kom Halldór, móð­ur­afi minn, fær­andi hendi úr ein­hverri sigl­ing­unni. Hann gaf mér tusku­apa í smekk­buxum og með eyrna­lokk í öðru eyr­anu. Hann sagði að tusku­ap­inn héti Múhameð. Ég held að hann hafi ekki órað fyrir vand­ræð­unum sem annar nóbels­verð­launa­hafi átti eftir að koma sér í út af spá­mann­inum Múhameð. Ég held að hann hafi bara viljað færa heim­inn...
Pistill

Páll Ásgeir Ásgeirsson

Óbyggð­irnar kalla

Nýja árið rís flug­bratt úr flatneskju dag­anna eins og dæmi­gert stapa­fjall frá ísöld­inni skriður­unnið hið neðra en girt ókleifum hamra­beltum ofar. Í skugga fjalls­ins vafra nývakn­aðir ves­al­ingar tútnir af hangi­kjötsáti og slef­andi syk­ur­lopa síð­ast étnu Macintoshmolanna. Þeir nudda mara­þon­sjón­varps­þáttaglápsstír­urnar úr augum sér og hefja augu sín til fjall­anna með svar­dögum um nýtt líf. Í upp­hafi hvers árs hefst skipu­leg úti­vistar...
Pistill

Páll Ásgeir Ásgeirsson

Hver passar nátt­úr­una?

Eftir að hafa lesið frum­varpið um hinn svo­kall­aða nátt­úrupassa hefur höfuð mitt fyllst efa­semdum og van­trú á að verið sé að fara bestu og ein­föld­ustu leið­ina til þess að afla tekna fyrir íslenska nátt­úru. Verði lögin sam­þykkt sé ég ekki annað en heim­ilt verði að taka gjald af land­svæðum í einka­eigu sem ekki kjósa aðild að nátt­úrupass­anum. Lögin myndu gefa...
Pistill

Hallgrímur Oddsson

Sagan af ljótu jóla­peys­unni

Ljóta jóla­peysan hefur síð­ast­liðin ár notið sívax­andi vin­sælda og hefur aldrei verið vin­sælli en nú fyrir jólin 2014. Stórar versl­un­ar­keðjur fram­leiða eigin jóla­peysur og annan föstu­dag í des­em­ber verður Ljótu jóla­peysu­dag­ur­inn hald­inn hátíð­legur í fjórða sinn. [caption id="attachment_12058" align="alignleft" width="143"] Hall­grímur Oddsson, blaða­maður og hag­fræð­ingur.[/caption] Ólík­leg­asta fólk hefur grætt háar fjár­hæðir á því að sýsla með ljótar jóla­peysur, en vin­sældir...
Pistill

Kristín Hrefna Halldórsdóttir

Óeðlileg sönn­un­ar­byrði kvenna

Í dag eru ell­efu dagar síðan Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra. Hanna Birna er fyrsta konan sem segir af sér ráð­herra­emb­ætti enda er það ekki mjög algengt hér á landi. Flestir sem ná sér í svona ráð­herra­stóla sitja á þeim eins og varð­hundar á gulli. Voff! Það er eft­ir­sjá í Hönnu Birnu. Hún var fyrst kvenna til...
Pistill

Hallgrímur Oddsson

Getur eitt frum­varp dimmu í dags­ljós breytt?

Fyrir Alþingi liggur frum­varp ell­efu þing­manna* þar sem lagt er til að klukk­unni á Íslandi verði seinkað um klukku­stund. Fullyrt er að gangur klukk­unnar í dag gangi ekki í takt við lífs­klukku lands­manna. [caption id="attachment_12058" align="align­right" width="109"] Hall­grímur Oddsson, hag­fræð­ingur og blaða­maður.[/caption] Hvað klukkan á að vera, og hvort henni eigi að breyta á vorin og haustin, hefur lengi verið...
Pistill

Magnús Halldórsson

Stóra fréttin er stríðs­yf­ir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs

Leið­rétt­ingin á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum hefur verið kunn­gjörð. Almenn­ingur veit núna hvað kom upp úr pakk­anum. Það var óvænt gleði í ein­hverjum til­vikum, von­brigði fyrir aðra og fyr­ir­sjá­an­legt hjá sumum. Heilt yfir er aðgerðin öll for­dæma­laus, eins og stjórn­völd hafa raunar sagt sjálf. Hún felur í sér ójöfn tæki­færi fólks, til langrar fram­tíðar, í boði rík­is­sjóðs. Ég hefði sjálfur kosið að...

Mest lesið undanfarið ár