Flokkur

Pæling dagsins

Pistillforsetakosningar

Ritstjórn Kjarnans

Guðni getur sigrað Ólaf Ragnar

Guðni Th. Jóhann­es­son, doktór í sagn­fræði og dós­ent við Háskóla Íslands, til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta Íslands í gær. Í könn­unum hefur mælst mikið fylgi við hann, jafn­vel þó hann hafi ekki verið búinn að til­kynna um fram­boð. Guðni hefur rann­sakað íslensk stjórn­mál á ferli sínum, bæði sem rit­höf­undur og fræði­maður, og hefur á sér gott orð fyrir skel­egga...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sá for­dóma­fulli veður áfram

Hinn for­dóma­fulli Donald Trump verður full­trúi Repúblikana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Fátt getur komið í veg fyrir það, nema þá helst algjör hall­ar­bylt­ing á lands­fundi flokks­ins og óvænt atburða­rás. Fordómar hans eru opin­berir og hann hefur raunar marg­ít­rekað þá sjálfur. Hann vill meðal ann­ars hindra för fólks á grund­velli trú­ar­bragða og upp­runa. Hann vill vísa múslimum úr landi og reisa...
PistillFjarskipti

Ritstjórn Kjarnans

Nova tekur fram úr Símanum - Hraðar breyt­ingar á fjar­skipta­mark­aði

Í nýj­ustu skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn, sem birt­ist á vef stofn­un­ar­innar í gær, má sjá hvernig staðan er á mark­að­anum. Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að net­notkun í far­símum heldur áfram að aukast mikið. Aukn­ingin í gagna­magni á far­síma­neti var 67,6 pró­sent í fyrra, frá árinu 2014, gagn­magns­aukn­ing var 122,8 pró­sent og net­þjón­usta á far­síma­neti jókst um...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Kast­ljósið á for­set­anum vegna aflands­fé­laga

Umfjöllun erlendra fjöl­miðla um aflands­fé­laga­eignir Dorritar Moussaieff setur kast­ljósið á for­set­ann, Ólaf Ragnar Grímsson, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri í kosn­ing­unum í júní. Hann hafði áður stað­fast­lega neitað því að þau tengd­ust aflands­fé­lögum, en nú hefur hann sagt að hvorki hann né Dorrit hafi vitað af þessum eignum eða teng­ingum við aflands­fé­lög. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir íslenskan almenn­ing, eftir...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvernig verður staðan þegar tjöldin verða dregin frá?

Ríflega fjögur pró­sent af mark­aðsvirði skráðra félaga í kaup­höll Íslands gufaði upp á föstu­dag­inn. Öll félög í kaup­höll­inni lækk­uðu. Icelandair lækk­aði mest, um 7,4 pró­sent í við­skiptum upp á 3,2 millj­arða króna. Það verður for­vitni­legt að fylgj­ast með hvernig mark­að­ur­inn opnar í dag. Ein skýr­ingin á lækk­un­inni kanna að liggja í því, að grunn­rekstur margra félag­anna er erf­ið­ari núna en...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Fer Banda­ríkja­dalur í 100 krónur?

Banda­ríkja­dalur kostar nú 122 krónur. Fyrir ári síðan kost­aði hann 138 krónur. Gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum hefur styrkst nokkuð að und­an­förnu, og ef ekki kemur til inn­gripa frá Seðla­banka Íslands þá ætti gengi krón­unnar að styrkj­ast enn meira. Þar vegur ekki síst þungt, mikið gjald­eyr­is­inn­streymi vegna ferða­þjón­ust­unnar, en gert er ráð fyrir því að það verði yfir 400 millj­arðar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ó Kanada, ó Kanada

Hinn ljóm­andi góði og vand­aði frétta­vefur Norð­ur­skautið, sem skrifar um nýsköpun á Íslandi og ýmis­legt sem henni teng­ist, fjall­aði um rekstur Nýherja á vef sínum í gær, og þá orð sem for­stjór­inn Finnur Oddsson lét falla, og snéru að sam­an­burði á reglu­verk­inu í Kanada og á Íslandi. Einkum var það skatta­stefna land­anna þegar kemur að rann­sóknum og þróun sem Finnur...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Yfir­burða­staða Ólafs Ragnars í kviku lands­lagi - Barátta sem er langt í frá lokið

Könnun MMR, sem sýnir Ólaf Ragnar Grímsson með tæp­lega 23 pró­sentu­stiga for­skot á Andra Snæ Magnason í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir emb­ætti for­seta Íslands, sýnir glögg­lega hversu áhrifa­mikil ákvörðun það var hjá Ólafi Ragnari að bjóða sig fram á nýjan leik, 20 árum eftir að hann varð for­seti. Sem sitj­andi for­seti er hann með yfir­burða­stöðu og algjört for­skot á keppi­nauta, ekki síst...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Krefj­andi hag­stjórn framundan

Þrátt fyrir mikla ólgu á sviði stjórn­mál­anna og van­traust á stjórn­mála­mönnum, þá er staða efna­hags­mála í land­inu góð um þessar mundir. Raunar er staðan þannig, nú þegar loka­hnykk­ur­inn í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta er framundan, að flestir hag­vísar vísa í rétta átt. Helsta hættan er ofþensla, segja Seðla­banki Íslands og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn. Nú þarf halda vel á spöð­unum í hag­stjórn­inni....
PistillPanamaskjölin

Ritstjórn Kjarnans

Dóm­greind­ar­brestur og að láta gögnin tala

Afhjúp­andi umfjöllun um Panama­skjölin svo­nefndu heldur áfram að gera mikið gagn fyrir sam­fé­lagið, en í gær var Kastljós RÚV með hluta gagn­anna til umfjöll­unar. Það hefur komið í ljós á þessum tímum að RÚV gegnir mik­il­vægu hlut­verki, og það skiptir máli að þar sé vel haldið um þræði án nokk­urs póli­tísks þrýst­ings. Eiga blaða­menn RÚV hrós skilið fyrir góða vinnu....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Heild­ar­myndin verður að koma fram

Rík­is­skatt­stjóri hefur tekið 178 mál ein­stak­linga til sér­stakrar skoð­un­ar, og kraf­ist skýr­inga, vegna mis­ræmis milli fram­tala og skatta­skjóls­gagna sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypt­i. Skúli Eggert Þórð­ar­son hefur stað­fest þetta. Þetta er merki­legt, og sýnir vel hversu mik­il­vægt það var, að fá gögnin og skoða þau. Það var líka mik­il­vægt að sá sem komst yfir gögnin og kom þeim til skatta­yf­ir­valda hafi gert...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Nú er að láta verkin tala

Hafnar eru óform­legar við­ræður Íslands og Noregs með ESB um útfærslu á sam­eig­in­legu mark­miði um 40 pró­sent minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til 2030 miðað við 1990. Ísland mun einnig hafa sam­ráð við ESB og Noreg varð­andi full­gild­ingu Par­ís­ar­samn­ings­ins svo­nefnda í ljósi þess að stefnt er að því að 30 Evr­ópu­ríki vinni að sam­eig­in­legu mark­miði innan hans. Um þetta var til­kynnt í...

Mest lesið undanfarið ár