Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Þarf verka­lýðs­for­ystan kannski að fara að hlusta á varn­að­ar­orðin?

Nær for­dæma­laus staða er nú uppi í kjara­deilum á Íslandi, þar sem nán­ast allar kjara­við­ræður hafa siglt í einni hala­rófu beint í strand. Eftir umtals­verðar launa­hækk­anir til fram­halds­skóla­kenn­ara og lækna, og þá ekki síst þeirra síð­ar­nefndu, krefj­ast nú fleiri hópar í sam­fé­lag­inu skilj­an­lega að þeir fái líka stærri sneið af þjóð­ar­kök­unni. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, var svo ekki bein­línis að...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Nei, í alvör­unni Simmi?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, segir umdeildar breyt­ingar á ramma­á­ætlun, sem hafa sett Alþingi á hlið­ina og gert þingið nán­ast óstarf­hæft, tengj­ast stöð­unni á vinnu­mark­aði. Í sjón­varps­fréttum RÚV klukkan tíu í fyrra­kvöld sagði Sig­mundur Davíð: „Tengist henni vegna þess að til að hægt sé að verða við veru­legum kröfum um launa­hækk­anir og vænt­ingum um áfram­hald­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingu þurfum við að halda áfram...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvaða stóru mál bíða á hlið­ar­lín­unni eftir að mál­þóf­inu ljúki?

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er sann­færður sem aldrei fyrr um að nú sé mál mál­anna að breyta þing­sköpum til að koma í veg fyrir mál­þóf á Alþingi. Svo gagn­tek­inn er Bjarni af hug­mynd­inni að hann hefur nán­ast við hvert tæki­færi ítrekað mik­il­vægi þess að draga tenn­urnar úr stjórn­ar­and­stöð­unni á þing­inu til að „gera starf þings­ins skil­virkara og auka afköst,“...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Einka­fjár­fest­ing er áhrifa­mesta byggða­stefnan - Hana má örva

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, tap­aði fyrir starfs­mönnum Fiski­stofu, þegar deilur komu upp í sam­bandi við færslu á Fiski­stofu til Akur­eyrar. Starfs­menn ráða því hvort þeir flytji til Akur­eyrar eða ekki, og eru flestir á því að fara ekki. Upp­haf­lega stóð til að færa þessa sér­hæfðu stofnun til Akur­eyrar, án þess að nokkur starfs­maður hefði áhuga á því, eða...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Náttúran er aðdrátt­ar­aflið - Tækifæri fyrir fjár­festa á lands­byggð­inni

Upp­bygg­ingin í ferða­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, einkum í Reykja­vík, hefur verið hröð og mikil, og stytt­ist nú óðum í að mörg ný hótel opni. Á næstu tveimur árum verða hótel á Höfða­torgi, sem langt er komið í bygg­ingu, við Laugaveg og við Hörpu, búin að bæt­ast við allt það sem fyrir er. Svo eitt­hvað sé nefnt. Þá eru ótaldar margar aðrar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Tjöldin dregin frá og bull­andi ágrein­ingur blasir við

Eygló Harð­ar­dóttir, ráð­herra hús­næð­is­mála, hefur gert mátt­litlar til­raunir til þess að breyta hús­næð­is­mála­kerf­inu á þessu kjör­tíma­bili. Tíðindin sem bár­ust af nýj­ustu vend­ingum í þeim efnum, í gær, verða að telj­ast svo­lítið óvænt. Efnahags- og fjár­mála­ráðu­neytið svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi þessi mál, og vinnu við mat á áhrifum frum­varps ráð­herra. Málið sem um ræðir varðar stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða, en nú...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Eru almanna­tengl­arnir að eyði­leggja fyrir kjara­bar­átt­unni?

Hinar miklu kjara­deilur sem nú standa yfir á vinnu­mark­aði eru farnar að hafa alvar­legar afleið­ingar víða. Þær stéttir sem standa í bar­átt­unni hafa margar hverjar verið mjög dug­legar að koma því á fram­færi við fjöl­miðla hversu illa geti farið ef ekki verður gengið að kröfum þeirra. Augljóst hand­bragð þaul­vanra almanna­tengla er á mörgum þess­arra til­kynn­inga. Það er skilj­an­legt að stétt­irnar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Reyfara­kennd frá­sögn Egils Ágústs­sonar í dóm­sal

Rétt­ar­höldin í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þingis eru stór­merki­leg og margt nýtt hefur komið fram í þeim, um hvernig staðið var að við­skiptum innan Kaup­þings. Alls eru níu ákærðir í mál­inu, þar af eru allir helstu stjórn­endur Kaup­þings; Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri í Lúx­em­borg, Ingólfur Helgason, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Bjarki Díego, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útlána, og Sigurður...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Verk­falls­fros­inn fast­eigna­mark­aður

Mik­il­vægur grunnur í hag­kerf­inu teng­ist fast­eigna­við­skiptum. Marg­feld­is­á­hrif fast­eigna­við­skipta á ýmsa verslun eru þó nokkur. Nýir eig­endur hús­næðis eyða pen­ingum í að koma sér fyrir á nýjum stað og koma hlutum í það horf sem þeir vilja. Af þessum sökum eru fast­eigna­við­skipti mik­il­vægur þáttur í dag­legum gangi efna­hags­mála. Óhætt er að segja að mikið hökt sé nú komið upp í tengslum...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Verður ágóð­anum af stöð­ug­leika­skatt­inum hent á bál?

Í vik­unni verður að öllum lík­indum kynnt frum­varp um áætlun sem á að losa um fjár­magns­höft. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að það verði lagt fram á vor­þingi og það eru ekki margir dagar eftir af því. Nú þegar virð­ist liggja fyrir að þau skref sem á að taka feli í sér að gefin verði út skulda­bréf í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er hægt að grafa stríðs­öx­ina og ná þverpóli­tískri sátt um lausn í kjara­deil­unni?

Sú staða sem er komin upp í kjara­deilum verður alvar­legri og alvar­legri með hverjum deg­inum. Stjórn­endur á Lands­spít­al­anum greina frá því að verk­föll geti raun­veru­lega leitt til dauða sjúk­linga, skortur er á nauð­synja­vöru, þjón­ustu­skerð­ing innan ferða­þjón­ustu gerir það að verkum að tekjur vegna ferða­manna skila sér í minna mæli en þær ættu að gera, það er ekki hægt að gifta...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Listin að kunna að segja af sér og axla póli­tíska ábyrgð

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að einar sögu­leg­ustu þing­kosn­ingar í sögu Bret­lands fóru fram á fimmtu­dag. Nið­ur­staðan var sú, þvert á allar skoð­ana­kann­anir, að Íhalds­flokk­ur­inn vann stór­sigur og náði hreinum meiri­hluta. Þegar lokið var að telja upp úr kjör­köss­unum kom líka í ljós að Frjál­syndir demókratar og Verka­manna­flokk­ur­inn höfðu beðið afhroð og nokkrum klukku­tímum eftir að það lá fyrir...

Mest lesið undanfarið ár