Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvað vill Ragn­heiður Elín gera?

Um fátt annað er rætt en ferða­þjón­ust­una þessa dag­ana. Hvort sem það eru of margir ferða­menn, ekki nógu margir, hvar þeir gera þarfir sínar og svo fram­vegis. Tveir nokkuð áhrifa­miklir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna, þau Vigdís Hauks­dóttir og Jón Gunn­ars­son, hafa nú um helg­ina talað fyrir því að virð­is­auka­skattur verði hækk­aður á ferða­þjón­ust­una, sem hefur að stórum hluta verið í lægra þrepi...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Kvartar undan nei­kvæðri umræðu - en hefur sjálfur talað um stór­slys og ógn við öryggi

Fyrir helgi kom Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra í við­tal á Bylgj­unni. Þar kvart­aði hann undan nei­kvæðri umræðu um heil­brigð­is­kerfið og umfjöllun fjöl­miðla um ástandið. Umræðan hafi verið nei­kvæð síð­ustu fimm ár, en „dóms­dags­spár síð­ustu ára“ hafi nú ekki gengið eftir, og enn væri verið að reka heil­brigð­is­kerfi á Íslandi. Það sé þó búið að halda þessu að Íslend­ingum og fólk...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hefur Reykja­vík nokkurn tím­ann verið líf­legri?

Það er nauð­syn­legt, og löngu orðið tíma­bært, að Ísland setji sér stefnu í ferða­manna­málum. Við sjáum það á fréttum reglu­lega hvernig fer þegar fjöldi ferða­manna er á landi sem er ekki til­búið fyrir ágang­inn. Við sjáum líka sums staðar merki um að gull­graf­ara­æði hafi gripið um sig. Ýmiss konar miður skemmti­legir fylgi­fiskar fylgja auknum straumi ferða­manna, en eng­inn þeirra er...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gríð­ar­leg hags­muna­mál í fæð­ing­ar­or­lofs- og leik­skóla­málum

Starfs­hópur um leik­skóla að loknu fæð­ing­ar­or­lofi skil­aði af sér til­lögum á mið­viku­dag. Það þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart að þar er lagt til að stefnt verði að því að bjóða öllum börnum dvöl á leik­skóla þegar þau eru yngri en nú er raunin, eða frá eins árs aldri. Til að byrja með verði börnum veitt pláss frá...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Einföld skýr­ing á mat­ar­tollum: Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

Fyrir skömmu til­kynnti Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að á döf­inni sé nið­ur­fell­ing allra tolla, nema tolla á mat­væli. Þetta á að gera í tveimur skrefum fram til 1. jan­úar 2017. Ýmsir aðilar hafa fagnað þessu, svo sem Neyt­enda­sam­tökin og Við­skipta­ráð, sem reikn­aði út að með þessu lækki íslensk heim­ili útgjöld sín um 30 þús­und krónur á ári. Bæði þessi sam­tök, eins...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Enginn frá Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun á ráð­stefnu um þró­un­ar­sam­vinnu

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra er nú staddur á alþjóð­legri ráð­stefnu um fjár­mögnun þró­un­ar­sam­vinnu í Eþíópíu. Þaðan fer hann svo til Malaví, þar sem hann mun kynna sér starf­semi Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar þar í landi. Það vakti athygli ein­hverra að eng­inn starfs­maður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar er með Gunnari Braga í för, en umdæm­is­stjóri stofn­un­ar­innar í Malaví tekur svo á móti honum í Malaví. Þegar Kjarninn...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er nóg að taka strætó og hætta að nota sím­ann til að eign­ast íbúð?

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, gefur sér reglu­lega tíma til að blogga á Eyjunni. Um helg­ina skrif­aði hún pistil um sparnað, sér­stak­lega hús­næð­is­sparnað. Hún seg­ist hafa átt vini sem fóru hægar í gegnum háskóla­nám til að þurfa ekki að taka náms­lán, bjuggu heima hjá for­eldrum sínum lengur til að geta sparað fyrir hús­næði og tóku strætó í vinn­una. Hún vilji...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hégóma­girnd rík­is­bank­ans

Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, ætlar að byggja nýjar 14.500 höf­uð­stöðvar við Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Það finnst rík­is­bank­anum góð hug­mynd árið 2015, sjö árum eftir að íslenska banka­kerfið hrundi til grunna eins og spila­borg, með öllum sínum hégóma. Áætlaður kostn­aður (sem auð­vitað stenst í þetta skiptið) er um átta millj­arðar króna, og þar eru...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er gáfu­legt að reisa verk­smiðju á virku jarð­skjálfta­væði?

Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur hefur áhyggjur af því að fyr­ir­huguð kís­il­verk­smiðja PCC á Bakka við Húsavík geti reynst dauða­gildra vegna nálægðar við þekkt jarð­skjálfta­svæði. Í sam­tali við RÚV sagði Páll að bygg­ing­ar­lóð verk­smiðj­unar væri á einum óheppi­leg­asta stað Íslands fyrir málm­bræðslu. PCC hyggst reisa verk­smiðju sína í 500 metra fjar­lægð hinu svo­kall­aða Húsa­víkur- og Flat­eyj­armis­gengi sem er eitt virkasta jarð­skjálfta­svæði lands­ins....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hversu erfitt er að selja miða á lands­leiki sóma­sam­lega?

Jæja, KSÍ gerði það aftur. Enn eitt miða­sölu­klúðrið kom upp í gær, þegar miðar á leik Íslands og Kasakstan í und­ankeppni EM fóru „fyrir mis­tök“ í sölu á vef­síð­unni Miði.is. Fyr­ir­tækið sem sér­hæfir sig í að selja miða á hverslags við­burði, setti miða­söl­una „óvart“ í gang, en áður en mis­tökin upp­götv­uð­ust höfðu 85 heppnir ein­stak­lingar nælt sér í miða á...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er fulln­að­ar­sigur á Hol­lend­ingum í upp­sigl­ingu?

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu er í 23. sæti á lista FIFA yfir sterk­ustu knatt­spyrnu­þjóðir heims, en nýjasti list­inn var gef­inn út í gær. Ísland hefur aldrei verið ofar á list­anum, en liðið stökk upp um fjórtán sæti eftir fræk­inn sigur á Tékkum á dög­unum. Ísland er efst Norð­ur­land­anna á list­anum, ekki að það skipti öllu máli, en Danir koma fast...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er nauð­syn­legt að ráða nýjan for­stjóra hjá Íbúða­lána­sjóði?

Alls sóttu fjórtán ein­stak­lingar um starf for­stjóra Íbúða­lána­sjóðs; þrjár konur og ell­efu karlar. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöð­una fyrir lok mán­að­ar­ins, en Sigurður Erlings­son sagði starfi sínu lausu sem for­stjóri sjóðs­ins í lok apríl síð­ast­liðnum og lét sam­stundis af störfum. Hann gegndi starf­inu frá árinu 2010. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar í apríl vegna for­stjóra­breyt­ing­anna sagði að...

Mest lesið undanfarið ár