Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gjöf sem gleym­ist aldrei

Kári Stef­áns­son, for­stjóri og stofn­andi Íslenskrar erfða­grein­ingar, á hrós skilið fyrir að beita sér fyrir því að fyr­ir­tækið sem hann stýrir gefi íslenska rík­inu og Land­spít­al­anum, og þar með almenn­ingi, jáeindaskanna. Tækið kostar um 800 millj­ónir króna. Kári segir að varla sé hægt að tala um að nútíma­lækn­is­fræði án svona tækis, og því er það kær­komið. Það þarf ekki að...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Full ástæða til að hafa áhyggjur af neyt­enda­um­hverf­inu

Verðlag á Íslandi mælist hátt og for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, Jóhannes Gunn­ars­son, segir að það verði að lækka. Annars sé voð­inn vís og að ungt fólki muni flytja í stórum stíl frá land­inu. Samkvæmt nið­ur­stöðum Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, er Ísland dýr­ast af 37 Evr­ópu­löndum í sex af tólf vöru- og þjón­ustu flokkum, að því er fram kom í frétt RÚV. Jóhannes er...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Óhag­stætt að leigja í Reykja­vík - Mikill munur á öðrum borgum Norð­ur­landa

Hag­fræð­ingar Lands­bank­ans gerðu það að umtals­efni í gær, í hag­sjá sinni, hvernig leigu­verð hefur þró­ast und­an­farin ár. Það er mat þeirra að það sé óhag­stætt að leigja í Reykja­vík, þessi miss­erin, og hafi raunar verið þannig oft­ast nær, sé sagan skoðuð. Það kemur lík­lega ekki mörgum á óvart. Í hag­sjánni kemur fram að mik­ill munur sé á Reykja­vík og öðrum...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvar er Margrét Mart­eins­dóttir?

Þau átök sem átt hafa sér stað innan Bjartrar fram­tíðar und­an­farna daga hafa vart farið fram­hjá áhuga­mönnum um stjórn­mál. Heiða Kristín Helga­dóttir, sem var annar for­víg­is­manna að stofnun flokks­ins í febr­úar 2012, hefur gagn­rýnt sitj­andi for­mann, Guðmund Stein­gríms­son, harka­lega og sagst til­búin að taka sæti hans sé vilji fyrir því á meðal flokks­manna. Enginn þing­manna flokks­ins hefur stigið fram og...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gunnar Bragi með nokkra stór­sigra á skömmum tíma

Það var mat margra að Gunnar Bragi Sveins­son hefði ekki byrjað vel í starfi utan­rík­is­ráð­herra. Strax eftir að hann tók við var lagt upp með að hafna Evr­ópu­sam­bands­að­ild en að stór­efla sam­starf við Norðmenn og Evrópu á vett­vangi EES-samn­ings­ins. Sam­skiptin við Evr­ópu­sam­bandið voru hins vegar, væg­ast sagt, klúð­urs­leg frá fyrsta degi og Ísland var skilið eftir þegar Norðmenn og Færeyjar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Atvinnu­grein sem á allt sitt undir stór­brot­inni nátt­úru lands­ins

Nýjar tölur frá Ferða­mála­stofu sýna að afar hraður vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hér á landi markar ákveðin þátta­skil fyrir atvinnu­lífið. Frá ára­mótum hafa komið tæp­lega 700 þús­und ferða­menn til lands­ins, og í júlí fóru 180 þús­und erlendir ferða­menn frá land­inu, sem er 25 pró­sent aukn­ing frá fyrra ári. Töluvert hefur verið deilt um hvernig skuli haga almennri stefnu­mörkun í þessum efnum, þegar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gunnþór mætti horfa meira til hags­muna heild­ar­innar

Gunnþór Ingvason, for­stjóri Sílda­vinnsl­unnar, segir að stjórn­völd á Íslandi eigi ekki að taka þátt í því að beita Rússa við­skipta­þving­unum, heldur gæta hlut­leysis í mál­inu. Utan­rík­is­ráð­herra, og hans fólk, eigi að ein­beita sér að því að gæta hags­muna íslenskra fyr­ir­tækja. Afstaða til deilu­efna sem tengj­ast Rússum eigi að ráð­ast af þeim. Þetta er nokkuð merki­leg grein­ing hjá Gunnþóri, á utan­rík­is­póli­tík...
Pistill

Magnús Halldórsson

Blekk­ing­ar­kerfið enn til staðar

Hank Paulson (Henry, kall­aður Hank), fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna og for­stjóri Goldman Sachs bank­ans til rúm­lega 15 ára, hefur gert með nokkuð nákvæmum hætti upp atburð­ina haustið 2008 þegar banda­ríska ríkið lagði ævin­týra­legar fjár­hæðir inn í fjár­fest­inga­banka til þess að koma í veg fyrir alls­herj­ar­hrun fjár­mála­mark­aða í Banda­ríkj­unum, og hugs­an­lega mun víðar. Í heim­ild­ar­mynd, sem aðgengi­leg er á þjón­ustu Netflix, segir...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ekki of stór til að falla í fangið á skatt­greið­endum

Skatt­greið­endur eru aldrei langt undan þegar bankar eru ann­ars vegar. Breskir skatt­greið­endur fengu í gær reikn­ing upp á einn millj­arð punda, jafn­virði ríf­lega 200 millj­arða króna, sem rekja má til þess þegar breska ríkið lagði 45,5 millj­arða punda inn í Royal Bank of Scotland haustið 2008, vegna þess að hann var tal­inn vera of stór til að falla. Fyrir 5,4...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sakar ekki að und­ir­búa sig vel fyrir tækni­bylt­ingar

Tíðindi úr bíla­iðn­aði að und­an­förnu benda til þess að miklar breyt­ingar séu handan við hornið. Sumir ganga svo langt að tala um mestu breyt­ingar í meira hálfa öld. Þær snú­ast meðal ann­ars um þróun á sjálfa­kandi bílum og einnig miklum fram­förum sem hafa orðið að und­an­förnu þegar kemur að þróun bíla sem ganga fyrir raf­magni. Nýjustu tíð­indin, frá því í...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvernig munu Píratar bregð­ast við leift­ur­sókn fjór­flokks­ins?

Píratar eru enn á flugi, ef svo má segja. Mælast stærsta stjórn­mála­afl lands­ins, með 32 pró­sent fylgi, sam­kvæmt nýj­ustu könnun Capacent. Það er fjórum pró­sentu­stigum minna en sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þetta verða að telj­ast ótrú­legar tölur, sama hvernig á þær er litið, og það sem þessi nýjasta könnun stað­festir er að það er komin ákveðin festa í fylgið....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ótvírætt mik­il­vægi þeirra sem hafa kjark og þor í einka­rekstri

Skemmti­legt að heyra af því að hjónin Agnes Sig­urð­ar­dóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eig­endur bruggverk­smiðj­unnar Kalda á Árskógs­sandi í Eyjarði, ætli að færa út kví­arnar með því að koma upp 350 til 400 fer­metra bjálka­húsi undir bjór­böð sem fólk getur notið góðs af. Vafa­lítið verða þau vin­sæl. Agnes og Ólafur Þröstur eru dæmi um frum­kvöðla sem hafa kjark og þor...

Mest lesið undanfarið ár