Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Eitt pró­sent á helm­ing alls auðs í heim­inum - Sláandi veru­leiki

Um helm­ingur af öllum auði í heim­inum er nú í eigu hund­raðs­hluta íbúa jarðar. Hin 99 pró­sent skipta á milli sín 49,6 pró­sent af auð­inum, sam­kvæmt nýrri úttekt sviss­neska bank­ans Credit Suisse. Til þess að til­heyra rík­ari helm­ingnum þarf við­kom­andi að eiga 400 þús­und krónur eða meira, en til þess að til­heyra þessu eina pró­senti sem á meira en helm­ing­inn...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Mik­il­vægir áfangar á skömmum tíma - Erlend lána­lína og upp­gjör við Icesave og AGS

Greint var frá því í gær að Lands­bank­inn, sem ríkið á 98 pró­sent hlut í, hefði stigið afger­andi skref útt á erlendan fjár­mála­markað með skulda­bréfa­út­gáfu upp á 300 millj­ónir evra, eða sem nemur um 43 millj­örðum króna. Vext­irnir er fastir þrjú pró­sent, að við­bættur vaxta­á­lagi upp á 2,95 pró­sent. Það telst vera mikið, miðað við gang mála á fjár­mála­mörk­uðum, en...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ólafur Ragnar spilar á þjóð sína eins og fiðlu

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, var gestur útvarps­þátt­ar­ins Sprengisands í gær. Þar lýsti Ólafur Ragnar því yfir að hann hefði ekki ákveðið hvort hann myndi bjóða sig fram til for­seta í sjötta sinn á næsta ári, en þá hefur hann setið í emb­ætt­inu í 20 ár. Þetta er fjarri því í fyrsta sinn sem for­set­inn tjáir sig í véfrétt­ar­stíl um...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gjöf MS eins­konar til­færsla á skattfé úr einum vasa í annan

Tækjamál Land­spít­al­ans eru loks að kom­ast í gott horf að nýju og að und­an­förnu hefur hann getað bætt við sig nýjum og spenn­andi tækjum fyrir gjaf­arfé sem auka á vel­ferð allra Íslend­inga, í stað þess að nota það fé til að halda í horf­inu. RÚV greindi frá því í fyrra­dag að gjafir til spít­al­ans frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum haf aldrei...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Lögmálin munu hafa sinn vana gang

Stjórn­völd hafa hug á því að blása til fundar um hús­næð­is­mál, og reyna að finna „lausn“ á því hvernig megi auka fram­boð af hús­næði, til þess að bregð­ast við mik­illi eft­ir­spurn, og jafn­framt lækka bygg­ing­ar­kostnað. Samkvæmt því sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sagði í við­tali við Við­skipta­blaðið þá er það talið nauð­syn­legt, að halda mik­inn og fjöl­mennan fund þar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Einn af stóru minn­is­vörð­unum

Seðla­banki Íslands sendi frá sér þau ánægju­legu tíð­indi í gær, að skuld Íslands við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn væri nú upp­greidd. Þetta ger­ist nákvæm­lega sjö árum eftir hið for­dæma­lausa banka­hrun, dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, þegar Lands­bank­inn, Glitnir og Kaupþing hrundu eins og spila­borg. Þessi tíma­mót eru stað­fest­ing á því að efna­hags­á­ætlun Íslands og AGS hefur heppn­ast í stórum dráttum vel, og...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ánægju­legar fréttir frá Egils­stöðum

Ferða­skrif­stofan Discover the World til­kynnti í gær um þau áform sín að hefja reglu­legt flug frá Gatwick flug­velli í London til Egils­staða. Flug­á­ætl­unin hefst 24. maí á næsta ári og verður flogið tvisvar í viku til og frá Egils­stöðum fram undir lok sept­em­ber­mán­aðar. Síðan verður reynslan metin, og athugað hvort eft­ir­spurn verður eftir þjón­ust­unni utan þessa tíma­bils. Þetta eru miklar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ógagn­sætt eigna­safn almenn­ings

Tryggvi Gunn­ars­son, Umboðs­maður Alþingis, telur að Seðla­banka Íslands hafi skort laga­heim­ild til þess að stofna Eigna­safn Seðla­banka Íslands í sér­stöku dótt­ur­fé­lagi. Félagið hefur innan sinna vébanda eignir upp á hund­ruð millj­arða króna, sem að mestu hafa komið í „fang“ bank­ans eftir hrunið. Þetta er athygl­is­verð nið­ur­staða og verður áhuga­vert að sjá hvernig Seðla­banki Íslands svarar þessum athuga­semdum. Kjarninn hefur ítrekað...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Þraut­seigjan borgar sig

Fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Frumtak 2 hyggst leggja félag­inu Arctic Trucks til nýtt hlutafé, sam­tals verður fjár­fest­ingin um 500 millj­ónir króna. Verður féð notað til sóknar á erlenda mark­aði, og meðal ann­ars til að sækja inn á almennan bíla­markað, en til þessa hefur félagið einkum verið á mark­aði með mikið breytta bíla og náð þar sam­keppn­is­for­skoti og sér­stöðu. Saga Arctic Trucks teygir sig...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Verð­skulduð vel­gengni - Vel gert

Hrútar, kvik­mynd Gríms Hákon­ar­son, hlaut Gullaugað á kvik­mynda­há­tíð­inni í Zurich í Sviss. Sig­ur­ganga mynd­ar­innar á alþjóð­legum kvik­mynda­há­tíðum heldur áfram, en myndin er fram­lag Íslands til Ósk­arsverð­laun­anna í ár í flokki mynda á öðru máli en ensku. Íslensk kvik­mynda­gerð hefur verið á mik­illi sigl­ingu að und­an­förnu, en skemmst er að minn­ast þess að Þrestir, kvik­mynd Rúnars Rún­ars­sonar, var valin besta kvik­myndin...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Fylgið fýkur frá Sam­fylk­ing­unni - Er grunn­ur­inn far­inn?

Sam­fylk­ingin, í þeirri mynd sem stofnað var til hennar, er horfin. Hún getur ekki talist breið­fylk­ing þeirra sem eru vinstra megin við miðju í stjórn­málum lengur, en það var meg­in­mark­miðið með stofnun flokks­ins fyrir rúmum fimmtán árum. Skipu­lagt starf flokks­ins um land allt stendur eftir, en fylgið hefur fokið frá flokknum á und­an­förnum miss­erum. Nú mælist flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gott hjá Gunnari Braga

Það var gott hjá Gunnari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra að gagn­rýna mann­rétt­inda­brot Sádi Araba í ræðu sinni á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Til stendur að taka ungan mann af lífi fyrir litlar sem engar sakir, en slíkt er algengt í Sádi Arabíu, því miður. Sádi Arabar hafa lengi fengið að fremja hroða­leg mann­rétt­inda­brot gagn­vart fólki, ekki síst konum. Þær hafa verið grýttar...

Mest lesið undanfarið ár